24. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 12. desember 2023 kl. 09:10


Mætt:

Teitur Björn Einarsson (TBE) formaður, kl. 09:10
Ágúst Bjarni Garðarsson (ÁBG) 1. varaformaður, kl. 09:10
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 09:10
Björn Leví Gunnarsson (BLG) fyrir (GÓÓ), kl. 09:10
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 09:10
Guðbrandur Einarsson (GE), kl. 09:10
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 09:10
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:10

Oddný G. Harðardóttir var fjarverandi vegna annarra þingstarfa.

Nefndarritari: Þuríður Benediktsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Frestað.

2) 507. mál - kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða Kl. 09:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Steingrím Birgisson, Bergþór Karlsson, Pálma Viðar Snorrason og Jón Gest Ólafsson frá Höld ehf.

Þá fékk nefndin á sinn fund Heiðrúnu Björk Gísladóttur og Stefaníu Ásbjörnsdóttur frá Samtökum atvinnulífsins.

Loks mættu á fund nefndarinnar María Guðjónsdóttir og Gunnar Úlfarsson frá Viðskiptaráði Íslands.

3) Önnur mál Kl. 10:18
Nefndin ræddi starfið framundan. Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:20