29. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 15. desember 2023 kl. 17:48


Mætt:

Teitur Björn Einarsson (TBE) formaður, kl. 17:48
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ) 2. varaformaður, kl. 17:48
Guðbrandur Einarsson (GE), kl. 17:48
Inga Sæland (IngS) fyrir (ÁLÞ), kl. 17:48
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 17:48
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 17:48
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 17:48
Vilhjálmur Árnason (VilÁ) fyrir Diljá Mist Einarsdóttur (DME), kl. 17:48
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP) fyrir Ágúst Bjarna Garðarsson (ÁBG), kl. 17:48

Þórarinn Ingi Pétursson vék af fundi kl. 18:00-18:12.

Nefndarritari: Þuríður Benediktsdóttir

Bókað:

1) 468. mál - skattar og gjöld Kl. 17:48
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Hlyn Ingason og Elínu Guðjónsdóttur frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.

Hlé var gert á fundi kl. 18:24-18:30.

Nefndin ræddi drög að nefndaráliti.

Tillaga um afgreiða málið til 3. umræðu var samþykkt af eftirfarandi nefndarmönnum: Teiti Birni Einarssyni, Vilhjálmi Árnasyni, Jóhanni Friðriki Friðrikssyni, Þórarni Inga Péturssyni og Steinunni Þóru Árnadóttur. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Inga Sæland, Guðbrandur Einarsson og Oddný G. Harðardóttir greiddu atkvæði gegn afgreiðslu málsins.

Undir nefndarálit með breytingartillögu meiri hluta rita: Teitur Björn Einarsson, Vilhjálmur Árnason, Jóhann Friðrik Friðriksson, Þórarinn Ingi Pétursson og Steinunn Þóra Árnadóttir.

2) Önnur mál Kl. 18:34
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 18:34