43. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, miðvikudaginn 21. febrúar 2024 kl. 20:10


Mætt:

Teitur Björn Einarsson (TBE) formaður, kl. 20:10
Ágúst Bjarni Garðarsson (ÁBG) 1. varaformaður, kl. 20:10
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ) 2. varaformaður, kl. 20:10
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 20:10
Guðbrandur Einarsson (GE), kl. 20:10
Hildur Sverrisdóttir (HildS) fyrir Diljá Mist Einarsdóttur (DME), kl. 20:10
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 20:10
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 20:10
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 20:10

Guðbrandur Einarsson tók þátt í fundinum gegnum fjarfundarbúnað.

Nefndarritari: Þuríður Benediktsdóttir

Bókað:

1) 704. mál - kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík Kl. 20:10
Nefndin ræddi drög að nefndaráliti.

Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

Undir nefndarálit með breytingartillögu rita: Teitur Björn Einarsson, Ágúst Bjarni Garðarsson, Hildur Sverrisdóttir, Jóhann Friðrik Friðriksson og Steinunn Þóra Árnadóttir. Oddný G. Harðardóttir og Ásthildur Lóa Þórsdóttir rita undir álitið með fyrirvara.

2) Önnur mál Kl. 21:25
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 21:25