45. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, þriðjudaginn 5. mars 2024 kl. 09:15


Mætt:

Teitur Björn Einarsson (TBE) formaður, kl. 09:15
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 09:15
Eva Sjöfn Helgadóttir (ESH), kl. 09:15
Guðbrandur Einarsson (GE), kl. 09:15
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 09:15
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:15
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:15

Ágúst Bjarni Garðarsson var fjarverandi.
Diljá Mist Einarsdóttir var fjarverandi vegna annarra þingstarfa.

Nefndarritari: Þuríður Benediktsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:15
Fundargerðir 40. til 44. fundar voru samþykktar.

2) 627. mál - fyrirtækjaskrá o.fl. Kl. 09:15
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Margréti Arnheiði Jónsdóttur og Brynju Maríu Ólafsdóttur frá Samtökum fjármálafyrirtækja.

Þá komu á fund nefndarinnar Anna Harðardóttir, Helga Valborg Steinsdóttir og Salka Hauksdóttir frá Skattinum.

Jafnframt samþykkti nefndin að óska eftir minnisblaði frá menningar- og viðskiptaráðuneyti, sbr. 51. gr. þingskapa.

3) 137. mál - vísitala neysluverðs Kl. 09:55
Nefndin staðfesti umsagnabeiðnir með tveggja vikna umsagnafresti og ákvaða að Ásthildur Lóa Þórsdóttir verði framsögumaður málsins.

4) 552. mál - lækkun lóðarleigu ríkisins í þéttbýli Reykjanesbæjar Kl. 09:56
Nefndin staðfesti umsagnabeiðnir með tveggja vikna umsagnafresti og ákvað að Guðbrandur Einarsson verði framsögumaður málsins.

5) Önnur mál Kl. 09:57
Nefndin ræddi starfið framundan. Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:05