33. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 25. janúar 2016 kl. 09:30


Mættir:

Frosti Sigurjónsson (FSigurj) formaður, kl. 09:30
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) 2. varaformaður, kl. 09:30
Ásta Guðrún Helgadóttir (ÁstaH), kl. 09:30
Guðmundur Steingrímsson (GStein), kl. 09:30
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 10:30
Sigríður Á. Andersen (SÁA), kl. 09:30
Svandís Svavarsdóttir (SSv) fyrir Katrínu Jakobsdóttur (KJak), kl. 09:30
Valgerður Bjarnadóttir (VBj), kl. 09:30
Vilhjálmur Bjarnason (VilB), kl. 09:30

Brynjar Níelsson boðaði forföll.

Nefndarritari: Kolbrún Birna Árdal

Bókað:

1) Fundargerðir. Kl. 09:30
Fundargerðir 26. - 32. fundar samþykktar.

2) Eignarhald og sala á Landsbankanum hf.: Stöðuskýrsla varðandi fyrirhugaða sölumeðferð. Kl. 09:35
Jón Gunnar Jónsson forstjóri Bankasýslu ríkisins og Lárus L. Blöndal stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins kynntu skýrsluna fyrir nefndarmönnum og svöruðu spurningum.

3) 420. mál - Seðlabanki Íslands Kl. 10:35
Esther Finnbogadóttir, Hafsteinn Hafsteinsson og Lilja Sturludóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu mættu á fund nefndarinnar og svöruðu spurningum nefndarmanna.
Þá mættu Tryggvi Gunnarsson og Hafsteinn Dan Kristjánsson frá Umboðsmanni Alþingis, greindu frá sjónarmiðum sínum varðandi málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) Önnur mál Kl. 12:00
Fleira var ekki gert á fundinum.

Fundi slitið kl. 12:00