46. fundur
fjárlaganefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 9. mars 2015 kl. 09:40


Mættir:

Vigdís Hauksdóttir (VigH) formaður, kl. 09:40
Guðlaugur Þór Þórðarson (GÞÞ) 1. varaformaður, kl. 09:40
Oddný G. Harðardóttir (OH) 2. varaformaður, kl. 09:40
Ásmundur Einar Daðason (ÁsmD), kl. 09:45
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:40
Brynhildur Pétursdóttir (BP), kl. 09:40
Karl Garðarsson (KG), kl. 09:40

Haraldur Benediktsson og Valgerður Gunnarsdóttir voru fjarverandi vegna veikinda. Jón Þór Ólafsson áheyrnarfulltrúi var fjarverandi.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) Framkvæmd fjárlaga 2015 Kl. 09:40
Fjármála- og efnahagsráðuneyti: Ingþór Karl Eiríksson, Viðar Helgason og Sigurður H. Helgason. Farið var yfir áhættumat ráðuneytisins vegna eftirlits með framkvæmd fjárlaga.

2) Eftirlit með B- og E-hluta fyrirtækjum Kl. 11:30
Farice ehf. Ómar Benediktsson og Martha Árnadóttir. Farið var yfir lykiltölur í ársskýrslu 2014.

3) Önnur mál Kl. 12:15
Fleira var ekki rætt.

4) Fundargerðir fjárlaganefndar á 144. þingi Kl. 12:20
Fundargerð 45. fundar samþykkt.

Fundi slitið kl. 12:30