65. fundur
fjárlaganefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 18. maí 2015 kl. 09:00


Mættir:

Vigdís Hauksdóttir (VigH) formaður, kl. 09:00
Guðlaugur Þór Þórðarson (GÞÞ) 1. varaformaður, kl. 09:00
Oddný G. Harðardóttir (OH) 2. varaformaður, kl. 09:00
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 10:03
Brynhildur Pétursdóttir (BP), kl. 09:30
Haraldur Benediktsson (HarB), kl. 09:00
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ), kl. 09:20
Karl Garðarsson (KG), kl. 09:00
Valgerður Gunnarsdóttir (ValG), kl. 09:00

Ásmundur Einar Daðason var fjarverandi. Haraldur Benediktsson vék af fundi kl. 11:08, Brynhildur Pétursdóttir vék af fundi kl. 11:21, Karl Garðarsson kl. 11:21 og Jón Þór Ólafsson áheyrnarfulltrúi kl. 11:25.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 705. mál - meðferð og sala eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum Kl. 09:00
Fjármála- og efnahagsráðuneytið: Sigurður Helgi Helgason, Hafsteinn S. Hafsteinsson og Hrafn Hlynsson.
Bankasýsla ríkisins. Jón Gunnar Jónsson.
Farið var yfir frumvarp til laga um meðferð og sölu eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Þessi hluti fundarins var sameiginlegur með efnahags- og viðskiptanefnd.

2) 206. mál - opinber fjármál Kl. 11:34
Ákveðið var að fjárlaganefnd fundi miðvikudaginn 20. maí, fimmtudaginn 21. maí og föstudaginn 22. maí frá kl. 08:00-10:00 um frumvarp til laga um opinber fjármál.

3) Önnur mál Kl. 11:40
Fleira var ekki gert.

4) Fundargerðir fjárlaganefndar á 144. þingi Kl. 11:43
Fundargerð 64. fundar samþykkt.

Fundi slitið kl. 11:44