71. fundur
fjárlaganefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 1. júní 2015 kl. 08:00


Mættir:

Vigdís Hauksdóttir (VigH) formaður, kl. 08:00
Fanný Gunnarsdóttir (FG) fyrir Ásmund Einar Daðason (ÁsmD), kl. 08:00
Haraldur Benediktsson (HarB), kl. 08:10
Karl Garðarsson (KG), kl. 08:00
Valgerður Gunnarsdóttir (ValG), kl. 08:00

Guðlaugur Þór Þórðarson var fjarverandi vegna starfa á vegum Alþingis erlendis. Oddný G. Harðardóttir, Bjarkey Gunnarsdóttir, Brynhildur Pétursdóttir og Jón Þór Ólafsson áheyrnarfulltrúi voru fjarverandi. Haraldur Benediktsson vék af fundi kl. 8:15 og kom til baka kl. 8:38.

Nefndarritari: Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 206. mál - opinber fjármál Kl. 08:00
Farið var yfir frumvarp til laga um opinber fjármál og unnið að gerð nefndarálits.

2) Önnur mál Kl. 09:15
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerðir fjárlaganefndar á 144. þingi Kl. 09:19
Fundargerð 70. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 09:20