42. fundur
fjárlaganefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 16. febrúar 2015 kl. 09:30


Mættir:

Guðlaugur Þór Þórðarson (GÞÞ) 1. varaformaður, kl. 09:35
Oddný G. Harðardóttir (OH) 2. varaformaður, kl. 09:35
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 10:00
Brynhildur Pétursdóttir (BP), kl. 10:00
Karl Garðarsson (KG), kl. 09:35
Valgerður Gunnarsdóttir (ValG), kl. 10:09
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) fyrir Vigdísi Hauksdóttur (VigH), kl. 09:35

Valgerður Gunnarsdóttir vék af fundi kl. 11:37 til að sækja fund forsætisnefndar. Guðlaugur Þór Þórðarson vék af fundi kl. 12:00 og þá tók Oddný G. Harðardóttir við fundarstjórn. Ásmundur Einar Daðason, Haraldur Benediktsson og Jón Þór Ólafsson áheyrnarfulltrúi voru fjarverandi.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 206. mál - opinber fjármál Kl. 09:35
Fjármála- og efnahagsráðuneyti: Jóhann Rúnar Björgvinsson og Þórhallur Arason.
Fjársýsla ríkisins Gunnar Hall.
Gestirnir fóru yfir frumvarp um opinber fjármál.
BSRB: Dalla Ólafsdóttir og Kristinn Bjarnason.
Samband íslenskra sveitarfélaga: Karl Björnsson, Guðjón Bragason og Gunnlaugur Júlíusson.
Farið var yfir umsagnir gesta um frumvarp um opinber fjármál.

2) Önnur mál Kl. 12:12
Oddný G. Harðardóttir óskaði eftir að saksóknari og sérstakur saksóknari yrðu boðaðir til fundar við nefndina til að fara yfir stöðu mála hjá embættunum og fjárhagsstöðu.

3) Fundargerðir fjárlaganefndar á 144. þingi Kl. 12:17


Fundi slitið kl. 12:25