16. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 13. nóvember 2014 kl. 08:30


Mættir:

Ögmundur Jónasson (ÖJ) formaður, kl. 08:30
Brynjar Níelsson (BN) 1. varaformaður, kl. 09:00
Pétur H. Blöndal (PHB), kl. 08:30
Sigrún Magnúsdóttir (SigrM), kl. 08:30
Valgerður Bjarnadóttir (VBj), kl. 08:45
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 09:00

Birgitta Jónsdóttir og Brynhildur Pétursdóttir boðuðu forföll vegna annarra þingstarfa.
Helgi Hjörvar og Karl Garðarson voru fjarverandi.

Nefndarritari: Elín Valdís Þorsteinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:40
Fundargerðir 12. - 15. fundar voru samþykktar.

2) Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um lyf fyrir börn Kl. 09:00
Formaður fór yfir drög að áliti til utanríkismálanefndar. Allir með á álitinu.

3) Tilskipun 2009/72/EB er varðar innri raforkumarkað (þriðji orkupakkinn) Kl. 08:45
Formaður lagði til að málið yrði tekið fyrir að nýju á næsta fundi.

4) Tilskipun 2013/37/ESB er varðar endurnot opinberra upplýsinga. Kl. 09:30
Nefndin fjallaði um málið. Formaður lagði til að málið yrði afgreitt á næsta fundi.

5) Önnur mál Kl. 08:30
Formaður kynnti tilhögun næstu funda sem nefndin ræddi.
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:45