3. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 27. september 2023 kl. 09:07


Mætt:

Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv) formaður, kl. 09:07
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) 1. varaformaður, kl. 09:07
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 09:07
Berglind Harpa Svavarsdóttir (BHS), kl. 09:07
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:07
Hildur Sverrisdóttir (HildS), kl. 09:52
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP) fyrir Ágúst Bjarna Garðarsson (ÁBG), kl. 09:07
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ), kl. 09:18

Sigmar Guðmundsson var fjarverandi.

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Hlé var gert á fundi milli kl. 10:35-11:01.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:07
Fundargerð 2. fundar var samþykkt.

2) Beiðni um skipun rannsóknarnefndar vegna snjóflóðsins í Súðavík 16. janúar 1995 Kl. 09:07
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Bryndísi Hlöðversdóttur ráðuneytisstjóra og Sigurð Örn Guðleifsson frá forsætisráðuneyti og Sigurð Örn Hilmarsson frá Rétti - Aðalsteinsson & Partners.

3) Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Sinfóníuhljómsveit Íslands - stjórnsýsluúttekt september 2023 Kl. 11:01
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Sigrúnu Brynju Einarsdóttur ráðuneytisstjóra, Baldur Þóri Guðmundsson og Guðrúnu Gunnarsdóttur frá menningar- og viðskiptaráðuneyti.

4) Önnur mál Kl. 11:17
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:17