25. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í færeyska herberginu, föstudaginn 12. desember 2014 kl. 14:40


Mættir:

Höskuldur Þórhallsson (HöskÞ) formaður, kl. 14:40
Haraldur Einarsson (HE) 2. varaformaður, kl. 14:40
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 14:40
Elín Hirst (ElH), kl. 14:40
Róbert Marshall (RM), kl. 14:40
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 14:40

Katrín Júlíusdóttir og Jón Þór Ólafsson voru fjarverandi.

Nefndarritari: Heimir Skarphéðinsson

Bókað:

1) 422. mál - úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála Kl. 14:40
Formaður lagði fram drög að nefndaráliti og lagði til að málið yrði afgreitt sem allir viðstaddir nefndarmenn voru sammála um.

Að áliti nefndarinnar standa: HöskÞ, HE, BÁ, ElH, SSv, RM, SÁÁ.

2) 423. mál - varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum Kl. 14:40
Formaður lagði fram drög að nefndaráliti og lagði til að málið yrði afgreitt sem allir viðstaddir nefndarmenn voru sammála um.

Að áliti nefndarinnar standa: HöskÞ, HE, BÁ, ElH, SSv, RM, SÁÁ.

3) Önnur mál Kl. 14:45
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 14:45