32. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 16. febrúar 2015 kl. 09:40


Mættir:

Höskuldur Þórhallsson (HöskÞ) formaður, kl. 09:40
Katrín Júlíusdóttir (KaJúl) 1. varaformaður, kl. 09:40
Haraldur Einarsson (HE) 2. varaformaður, kl. 09:40
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 09:40
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ), kl. 10:05
Róbert Marshall (RM), kl. 09:40
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 09:40
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:40

Elín Hirst var fjarverandi vegna veikinda.

Nefndarritari: Heimir Skarphéðinsson

Bókað:

1) Fundargerð. Kl. 09:40
Samþykkt fundargerðar var frestað.

2) Kynning á stöðu Íslands í loftslagsmálum Kl. 09:40
Á fund nefndarinnar komu Stefán Haukur Jóhannesson og Hrund Hafsteinsdóttir frá utanríkisráðuneytinu og Hugi Ólafsson, Stefán Einarsson og Helga Jónsdóttir frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Kynntu þau stöðu Íslands í loftslagsmálum, skuldbindingar til 2020 skv. 2. tímabili Kyoto-bókunarinnar, tvíhliða samning við ESB, Parísarfundinn og væntanlegt nýtt hnattrænt samkomulag eftir 2020.

3) Reglugerð ESB nr 181/2011 - jöfnun á réttindum farþega Kl. 10:48
Álit nefndarinnar til utanríkismálanefndar var afgreitt.

4) Reglugerð (ESB) nr. 361/2014 um stöðlun skjala sem fylgja fólksflutningum á vegum milli ríkja Kl. 10:48
Álit nefndarinnar til utanríkismálanefndar var afgreitt.

5) Tilskipun 2014/47/ESB um vegaskoðun ökutækja Kl. 10:48
Álit nefndarinnar til utanríkismálanefndar var afgreitt.

6) Reglugerð (ESB) nr. 901/2014 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 168/2013 er varðar stjórnsýslukröfur fyrir samþykkt og eftirliti ákveðinna ökutækja Kl. 10:48
Álit nefndarinnar til utanríkismálanefndar var afgreitt.

7) Tilskipun 2014/52/ESB um breytingu á tilskipun 2011/92/ESB er varðar mat á umhverfisáhrifum tiltekinna framkvæmda Kl. 10:48
Álit nefndarinnar til utanríkismálanefndar var afgreitt.

8) Reglugerð (ESB) nr. 3/2014 til viðbótar reglugerð (ESB) nr. 168/2013 er varðar bifhjól Kl. 10:48
Álit nefndarinnar til utanríkismálanefndar var afgreitt.

9) Reglugerð (ESB) nr. 911/2014 um fjármögnun aðgerða Siglingaöryggisstofnunar Evrópu Kl. 10:48
Álit nefndarinnar til utanríkismálanefndar var afgreitt.

10) Reglugerð (ESB) nr. 1177/2010 um réttindi farþega á sjó og skipgengum vatnaleiðum Kl. 10:48
Álit nefndarinnar til utanríkismálanefndar var afgreitt.

11) Reglugerð (ESB) nr. 517/2014 er varðar flúoraðar gróðurhúsalofttegundir Kl. 10:48
Álit nefndarinnar til utanríkismálanefndar var afgreitt.

12) Tilskipun 2014/99/ESB er varðar staðla fyrir gufugleypibúnað á eldsneytisstöðvum Kl. 10:48
Álit nefndarinnar til utanríkismálanefndar var afgreitt.

13) 305. mál - raforkulög Kl. 10:50
Umsögn nefndarinnar til atvinnuveganefndar var afgreidd en nefndarmönnum gafst tækifæri til athugasemda til loka dags.

14) 321. mál - stefna stjórnvalda um lagningu raflína Kl. 10:50
Sjá fyrri dagskrárlið.

15) 455. mál - náttúrupassi Kl. 10:55
Nefndin ræddi málsmeðferð málsins.

16) Önnur mál Kl. 10:48
Nefndin afgreiddi álit til utanríkismálanefndar vegna tilskipunar 2008/6/ESB um lágmarksþjálfun sjómanna.

Fundi slitið kl. 11:00