23. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn þriðjudaginn 15. desember 2020 kl. 09:18


Mætt:

Bergþór Ólason (BergÓ) formaður, kl. 09:18
Jón Gunnarsson (JónG) 1. varaformaður, kl. 09:18
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 09:18
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:18
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:18
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 09:18
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:19
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:18
Sara Elísa Þórðardóttir (SEÞ), kl. 09:18
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:18

Hanna Katrín Friðriksson vék af fundi kl. 10:19.

Nefndarritari:

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:19
Fundargerð 22. fundar samþykkt.

2) Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1971 frá 11. desember 2018 um að koma á fót evrópskum hópi eftirlitsaðila á sviði rafrænna fjarskipta (BEREC) og stofnun til að styðja við BEREC-hópinn (BEREC-skrifstofu), um breytingu á reglugerð (ESB) 2015/ Kl. 09:20
Tillaga um að afgreiða álit nefndarinnar til utanríkismálanefndar var samþykkt af öllum nefndarmönnum. Allir nefndarmenn skrifuðu undir álitið.

3) Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1972 frá 11. desember 2018 um setningu evrópskra reglna um rafræn fjarskipti (endurútgefin) Kl. 09:20
Tillaga um að afgreiða álit nefndarinnar til utanríkismálanefndar var samþykkt af öllum nefndarmönnum. Allir nefndarmenn skrifuðu undir álitið.

4) Breytingar á vegalögum Kl. 09:21
Nefndin ákvað að flytja frumvarp til laga um breytingu á vegalögum, nr. 80/2007.

5) 369. mál - Hálendisþjóðgarður Kl. 09:46
Nefndin samþykkti að Kolbeinn Óttarsson Proppé yrði framsögumaður málsins.

6) 275. mál - skipulagslög Kl. 09:48
Kl. 09:48 - Á fund nefndarinnar mættu Óskar Frank Guðmundsson, Rún Knútsdóttir og Þórunn Lilja Vilbergsdóttir frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Kl. 10:01 - Á fund nefndarinnar mætti Baldur Dýrfjörð frá Samorku. Gerði hann grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

Kl. 10:26 - Á fund nefndarinnar mættu Ásdís Hlökk Theódórsdóttir og Ólafur Árnason frá Skipulagsstofnun. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

7) Önnur mál Kl. 10:38
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:39