24. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 146. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 3. maí 2017 kl. 09:04


Mættir:

Valgerður Gunnarsdóttir (ValG) formaður, kl. 09:00
Pawel Bartoszek (PawB) 1. varaformaður, kl. 09:00
Bryndís Haraldsdóttir (BHar) 2. varaformaður, kl. 09:04
Ari Trausti Guðmundsson (ATG), kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:00
Einar Brynjólfsson (EB), kl. 09:00
Gunnar Bragi Sveinsson (GBS), kl. 09:00
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:06

Teitur Björn Einarsson var fjarverandi vegna þingstarfa erlendis.

Nefndarritari: Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:04
Fundargerð 19. fundar var samþykkt.

2) 355. mál - varnir gegn mengun hafs og stranda og hollustuhættir og mengunarvarnir Kl. 09:15
Nefndin hóf umfjöllun um málið og fékk á sinn fund Huga Ólafsson og Helgu Jónsdóttur frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.

3) 356. mál - loftslagsmál Kl. 09:40
Nefndin hóf umfjöllun um málið og fékk á sinn fund Huga Ólafsson og Helgu Jónsdóttur frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.

4) 234. mál - breyting á ýmsum lögum á sviði samgangna Kl. 09:50
Nefndin hóf umfjöllun um málið og fékk á sinn fund Gunnar Örn Indriðason, Björn Frey Björnsson, Ástu Sóllilju Sigurbjörnsdóttur og Valgerði Eggertsdóttur frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.

5) 307. mál - umferðarlög Kl. 10:20
Nefndin hóf umfjöllun um málið og fékk á sinn fund Gunnar Örn Indriðason, Björn Frey Björnsson, Ástu Sóllilju Sigurbjörnsdóttur og Valgerði Eggertsdóttur frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.

6) 402. mál - fjármálaáætlun 2018--2022 Kl. 10:40
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið.

7) 306. mál - tekjustofnar sveitarfélaga Kl. 10:50
Nefndin hóf umfjöllun um málið og fékk á sinn fund Hermann Sæmundsson og Guðna Geir Einarsson frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.

8) 375. mál - sveitarstjórnarlög Kl. 11:30
Dagskrárlið frestað.

9) Önnur mál Kl. 11:30
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:30