31. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 148. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 3. maí 2018
kl. 08:35
Mættir:
Bergþór Ólason (BergÓ) formaður, kl. 08:35Jón Gunnarsson (JónG) 1. varaformaður, kl. 08:35
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 08:35
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 08:35
Helga Vala Helgadóttir (HVH), kl. 08:35
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 08:35
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 08:35
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB), kl. 08:42
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 08:35
Hanna Katrín Friðriksson boðaði forföll vegna annarra þingstarfa.
Nefndarritari: Kolbrún Birna Árdal
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 08:35
Dagskrárlið frestað.
2) 455. mál - breyting á ýmsum lögum vegna alþjóðasamþykktar um vinnuskilyrði farmanna Kl. 08:36
Á fund nefndarinnar mætti Björn Freyr Björnsson frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Hann kynnti málið og svaraði spurningum nefndarmanna.
3) 454. mál - Póst- og fjarskiptastofnun o.fl. Kl. 08:47
Á fund nefndarinnar mættu Sigurjón Ingvason og Ottó V. Winther. Fóru þeir yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
4) Önnur mál Kl. 09:41
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 09:42