43. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 28. febrúar 2019 kl. 08:30


Mættir:

Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 08:30
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 1. varaformaður, kl. 08:30
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 2. varaformaður, kl. 08:30
Bergþór Ólason (BergÓ), kl. 08:30
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 08:30
Helga Vala Helgadóttir (HVH), kl. 08:30
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 08:42
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 08:30

Hanna Katrín Friðriksson boðaði forföll.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir boðaði forföll vegna þingstarfa erlendis.
Jón Gunnarsson vék af fundi kl. 09:20.

Nefndarritari: Inga Skarphéðinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 08:30
Frestað.

2) 219. mál - umferðarlög Kl. 08:31
Á fund nefndarinnar mættu Vigdís Håsler frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir og Lilja Sigurbjörg Harðardóttir frá Reykjavíkurborg, Kolbrún Jónatansdóttir frá Bílastæðasjóði, Karl Alvarsson frá Isavia og Gunnþóra Ólafsdóttir frá Ferðamálastofu. Gerðu gestir grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Eftir að gestir viku af fundi var samþykkt að óska eftir minnisblaði frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu um létt bifhjól í flokki 1.

3) Önnur mál Kl. 09:32
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:32