28. fundur
utanríkismálanefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 19. mars 2015 kl. 09:00


Mættir:

Birgir Ármannsson (BÁ) formaður, kl. 08:59
Vilhjálmur Bjarnason (VilB) 2. varaformaður, kl. 09:19
Elín Hirst (ElH), kl. 08:59
Katrín Jakobsdóttir (KJak), kl. 08:59
Óttarr Proppé (ÓP), kl. 09:00
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 08:59

Ásmundur Einar Daðason, Frosti Sigurjónsson og Össur Skarphéðinsson voru fjarverandi.

Nefndarritarar:
Sesselja Sigurðardóttir
Stígur Stefánsson

1652. fundur utanríkismálanefndar

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerð 27. fundar var samþykkt.

2) 480. mál - heimild fulltrúa Vestnorræna ráðsins til að senda fyrirspurnir til ráðherra Kl. 09:00
Á fund nefndarinnar kom Elín Flygenring frá utanríkisráðuneyti. Fjallaði hún um málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) 186. mál - fullgilding bókunar við samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum (OPCAT) Kl. 09:19
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið.

4) Tilskipun 2013/11/ESB er varðar lausn deilna í neytendamálum Kl. 09:22
Fyrir fundinum lá álit allsherjar- og menntamálanefndar eftir umfjöllun samkvæmt 2. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála. Nefndin lauk umfjöllun sinni um málið og verður utanríkisráðuneyti upplýst þar um.

5) Reglugerð (ESB) nr. 524/2013 er varðar lausn deilna í netviðskiptum neytenda Kl. 09:23
Fyrir fundinum lá álit allsherjar- og menntamálanefndar eftir umfjöllun samkvæmt 2. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála. Nefndin lauk umfjöllun sinni um málið og verður utanríkisráðuneyti upplýst þar um.

6) Önnur mál Kl. 09:26
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:29