38. fundur
utanríkismálanefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 8. júní 2020 kl. 09:30


Mætt:

Sigríður Á. Andersen (SÁA) formaður, kl. 09:30
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB) 1. varaformaður, kl. 09:30
Logi Einarsson (LE) 2. varaformaður, kl. 09:30
Ari Trausti Guðmundsson (ATG), kl. 09:30
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:30
Gunnar Bragi Sveinsson (GBS), kl. 09:30
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:30
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 09:30

Smári McCarthy var forfallaður vegna annarra þingstarfa.

Nefndarritari: Ívar Már Ottason

1900. fundur utanríkismálanefndar.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:30
Fundargerð 37. fundar var samþykkt.

2) Fundur sameiginlegu EES-nefndarinnar 12. júní 2020 Kl. 09:31
Á fund nefndarinnar komu Bergþór Magnússon frá utanríkisráðuneyti, Benedikt Hallgrímsson frá fjármála- og efnhagsráðuneyti og Vera Sveinbjörnsdóttir frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti.

Gestirnir kynntu þær gerðir sem til stendur að taka upp í EES-samninginn á fundi sameiginlegu EES-nefndarinnar 12. júní nk. og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 716. mál - utanríkisþjónusta Íslands Kl. 10:00
Á fund nefndarinnar komu Tryggvi Gunnarsson umboðsmaður Alþingis og Maren Andrésdóttir frá umboðsmanni Alþingis. Gestirnir fóru yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) Kynning á forsetaúrskurði um sendiráð, fastanefndir og sendiræðisskrifstofur Kl. 11:10
Á fundinn komu Jóhanna Bryndís Bjarnadóttir og Anna Jóhannsdóttir frá utanríkisráðuneyti. Þær fóru yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

5) Önnur mál Kl. 11:15
Rætt var um starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:20