21. fundur
utanríkismálanefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 13. mars 2019
kl. 10:30
Mættir:
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB) 1. varaformaður, kl. 10:30Logi Einarsson (LE) 2. varaformaður, kl. 10:30
Ari Trausti Guðmundsson (ATG), kl. 10:30
Álfheiður Eymarsdóttir (ÁlfE), kl. 10:30
Ásgerður K. Gylfadóttir (ÁsgG), kl. 10:30
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 10:30
Gunnar Bragi Sveinsson (GBS), kl. 10:30
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 10:30
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir var fjarverandi vegna þingstarfa erlendis.
Nefndarritari: Gunnþóra Elín Erlingsdóttir
1839. fundur utanríkismálanefndar
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 10:30
Fundargerð 20. fundar var samþykkt.
2) 539. mál - fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Filippseyja Kl. 10:30
Á fund nefndarinnar kom Birna Guðmundsdóttir frá Íslandsdeild Amnesty International.
Gesturinn gerði grein fyrir sjónarmiðum Íslandsdeildarinnar og svaraði spurningum nefndarmanna.
3) 584. mál - ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 258/2018 um breytingu á XVIII. viðauka við EES-samninginn Kl. 10:55
Fjallað var sameiginlega um dagskrárliði 3-5.
Á fund nefndarinnar komu Bergþór Magnússon og Pétur Gunnarsson frá utanríkisráðuneyti. Gestirnir kynntu málin og svöruðu spurningum nefndarmanna.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir var valin framsögumaður 584. máls - ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 258/2018 um breytingu á XVIII. viðauka við EES-samninginn.
Ari Trausti Guðmundsson var valinn framsögumaður 585. máls - ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 242/2018 um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn.
Bryndís Haraldsdóttir var valin framsögumaður 586. máls - ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 214/2018 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.
4) 585. mál - ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 242/2018 um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn Kl. 10:55
Sjá umfjöllun um 3. dagskrárlið.
5) 586. mál - ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 214/2018 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn Kl. 10:55
Sjá umfjöllun um 3. dagskrárlið.
6) Önnur mál Kl. 11:05
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 11:07