19. fundur
velferðarnefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í færeyska herberginu, miðvikudaginn 11. desember 2013 kl. 19:05


Mættir:

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (SII) formaður, kl. 19:05
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE) 1. varaformaður, kl. 19:05
Elín Hirst (ElH), kl. 19:05
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 19:05
Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK), kl. 19:05
Vilhjálmur Árnason (VilÁ) fyrir ÁsF, kl. 19:05

Björt Ólafsdóttir og Lilja Rafney Magnúsdóttir voru fjarverandi.

Nefndarritari: Heimir Skarphéðinsson

Bókað:

1) 144. mál - almannatryggingar, málefni aldraðra og félagsleg aðstoð Kl. 19:05
Formaður lagði til að málið yrði afgreitt með nefndaráliti sem dreift hafði verið á þarsíðasta fundi nefndarinnar. Var samþykkt að afgreiða málið.

Að nefndaráliti standa: SII, ÞórE, VilÁ, ElH, GuðbH, LRM, PJP, UBK.

2) Önnur mál Kl. 19:15
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 19:15