64. fundur
velferðarnefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í fjarfundur, miðvikudaginn 29. apríl 2020 kl. 09:20


Mætt:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 09:20
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 09:20
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 10:00
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:20
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:20
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:20
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 09:20
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:20
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 09:20
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:20

Nefndarritarar:
Arnar Kári Axelsson
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:20
Frestað.

2) Staðan vegna kórónaveirunnar Covid-19 Kl. 09:30
Á fund nefndarinnar mættu Þuríður Harpa Sigurðardóttir, Sigríður Hanna Ingólfsdóttir og Sigurjón Unnar Sveinsson frá Öryrkjabandalagi Íslands. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 666. mál - félagslegur viðbótarstuðningur við aldraða Kl. 09:50
09:50 Á fund nefndarinnar mættu Þuríður Harpa Sigurðardóttir, Sigríður Hanna Ingólfsdóttir og Sigurjón Unnar Sveinsson frá Öryrkjabandalagi Íslands. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

10:20 Á fund nefndarinnar mætti Vera Dögg Guðmundsdóttir frá Útlendingastofnun. Fjallaði hún um málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

10:35 Á fund nefndarinnar mættu Ingvar J. Rögnvaldsson og Elín Alma Arthursdóttir frá Skattinum. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) 665. mál - aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum Kl. 10:55
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með tveggja vikna umsagnarfresti. Þá var ákveðið að Ásmundur Friðriksson verði framsögumaður málsins.

5) 701. mál - sjúkratryggingar Kl. 10:56
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með tveggja vikna umsagnarfresti. Þá var ákveðið að Ólafur Þór Gunnarsson verði framsögumaður málsins.

6) 723. mál - aðgerðir í þágu atvinnulausra vegna COVID-19 heimsfaraldursins Kl. 10:57
Ákveðið var að senda málið til umsagnar. Þá var ákveðið að Helga Vala Helgadóttir verði framsögumaður málsins.

7) Önnur mál Kl. 11:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:00