70. fundur
velferðarnefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í fjarfundur, miðvikudaginn 13. maí 2020
kl. 09:00
Mætt:
Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 09:00Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 09:15
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:00
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:00
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 09:00
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:00
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 09:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:00
Halldóra Mogensen vék af fundi kl. 09:50.
Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson
Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.
Bylgja Árnadóttir, sérfræðingur nefndarinnar, var viðstödd fundinn.
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:00
Frestað.
2) 634. mál - siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu Kl. 09:05
Á fund nefndarinnar mættu Reynir Arngrímsson og Svanur Sigurbjörnsson frá Læknafélagi Íslands. Fjölluðu þeir um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
3) 635. mál - lækningatæki Kl. 10:00
Á fund nefndarinnar mættu Rögnvaldur G. Gunnarsson, Kristín Ninja Guðmundsdóttir og Kristín Lára Helgadóttir frá heilbrigðisráðuneytinu. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
4) Önnur mál Kl. 11:00
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 11:00