ETS losunarheimildir í flugi
Frumkvæðismál (2302279)
Umhverfis- og samgöngunefnd
Erindi
Sendandi | Skýring | Dagsetning |
---|---|---|
Utanríkisráðuneytið | 05.06.2023 | |
Utanríkisráðuneytið | 06.03.2023 |
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
07.06.2023 | 65. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | ETS losunarheimildir í flugi Nefndin samþykkti að birta minnisblað dags. 3. mars 2023 sem henni barst frá utanríkisráðuneytinu á vef, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 35. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis. |
06.06.2023 | 64. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | ETS losunarheimildir í flugi Nefndin samþykkti að birta minnisblað frá utanríkisráðuneytinu um málið á vef, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 35. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis. |
17.05.2023 | 56. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | ETS losunarheimildir í flugi Nefndin samþykkti með vísan til 51. gr. þingskapa að óska eftir minnisblaði frá utanríkisráðuneytinu um þá niðurstöðu sem náðist í viðræðum íslenskra stjórnvalda og ESB um sérlausn fyrir Ísland varðandi losunarheimildir í flugi og greint var frá á blaðamannafundi Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og Ursulu von der Leyen forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins 16. maí 2023. |
28.02.2023 | 33. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | ETS losunarheimildir í flugi Nefndin ræddi gagnaöflun vegna málsins. Ákveðið var að falla frá beiðni um minnisblað forsætisráðuneytisins, sbr. fundargerð 32. fundar, og óska þess í stað eftir minnisblaði frá utanríkisráðuneytinu um málið. |
23.02.2023 | 32. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | ETS losunarheimildir í flugi Nefndin ræddi málið og samþykkti með vísan til 51. gr. þingskapa að óska eftir minnisblaði frá forsætisráðuneytinu um þau samskipti sem átt hafa sér stað milli ráðuneytisins og Evrópusambandsins varðandi ETS-losunarheimildir í flugi. |