Opinn fundur í allsherjar- og menntamálanefnd fimmtudaginn 11. maí
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis heldur opinn fund fimmtudaginn 11. maí í húsnæði nefnda- og greiningarsviðs Alþingis í Austurstræti 8–10 og hefst hann kl. 10:30.
Fundarefnið er fyrirkomulag og framtíð opinberrar skjalavörslu.
Gestir fundarins verða: Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra, Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður, Sigrún Brynja Einarsdóttir, ráðuneytisstjóri menningar- og viðskiptaráðuneytis, Ragnheiður Kristjánsdóttir, prófessor í sagnfræði, og Sigurjón Baldur Hafsteinsson, prófessor í safnafræði.
- Kl. 10:30 Ragnheiður Kristjánsdóttir, prófessor í sagnfræði, og Sigurjón Baldur Hafsteinsson, prófessor í safnafræði
- Kl. 10:50 Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra, Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður og Sigrún Brynja Einarsdóttir, ráðuneytisstjóri menningar- og viðskiptaráðuneytis
Fundurinn verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis.
Fundurinn verður haldinn samkvæmt X. kafla reglna um starfsreglur fastanefnda Alþingis.