Þskj. 1213 — 794. mál.
Frumvarp til laga
um breyting á lögum nr. 87/2004, um olíugjald og kílómetragjald o.fl., með síðari breytingum.
(Lagt fyrir Alþingi á 132. löggjafarþingi 2005–2006.)
1. gr.
a. Við 1. mgr. bætist nýr töluliður er orðast svo: til nota á bifreiðir í eigu björgunarsveita. Með björgunarsveit er átt við sjálfboðaliðasamtök sem hafa björgun mannslífa og verðmæta að aðalmarkmiði.
b. Í stað orðanna „og 7. tölul.“ í 3. og 5. mgr. kemur: 7. og 8. tölul.
c. Í stað orðanna „6. tölul.“ í 4. mgr. kemur: 6. og 8. tölul.
2. gr.
3. gr.
4. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. 1. gr. laga þessara skal fjárhæð olíugjalds vera 41 kr. á hvern lítra af olíu frá gildistöku laga þessara til 31. desember 2006.
5. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 6. mgr. 13. gr. laganna skal fjárhæð sérstaks kílómetragjalds vera sem hér segir frá gildistöku laga þessara til 31. desember 2006:
Leyfð | Sérstakt | Leyfð | Sérstakt |
heildarþyngd | kílómetragjald, | heildarþyngd | kílómetragjald, |
ökutækis, kg | kr. | ökutækis, kg | kr. |
5.000–6.000 | 8,45 | 18.001–19.000 | 22,31 |
6.001–7.000 | 9,14 | 19.001–20.000 | 23,32 |
7.001–8.000 | 9,84 | 20.001–21.000 | 24,33 |
8.001–9.000 | 10,54 | 21.001–22.000 | 25,34 |
9.001–10.000 | 11,23 | 22.001–23.000 | 26,35 |
10.001–11.000 | 12,22 | 23.001–24.000 | 27,36 |
11.001–12.000 | 13,52 | 24.001–25.000 | 28,37 |
12.001–13.000 | 14,82 | 25.001–26.000 | 29,38 |
13.001–14.000 | 16,11 | 26.001–27.000 | 30,39 |
14.001–15.000 | 17,41 | 27.001–28.000 | 31,40 |
15.001–16.000 | 18,71 | 28.001–29.000 | 32,41 |
16.001–17.000 | 20,00 | 29.001–30.000 | 33,42 |
17.001–18.000 | 21,30 | 30.001–31.000 | 34,43 |
31.001 og yfir | 35,44 |
6. gr.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Með lögum nr. 70/2005, um breyting á lögum nr. 87/2004, um olíugjald og kílómetragjald o.fl., var lögfest tímabundin lækkun á fjárhæð olíugjalds um 4 kr. frá 1. júlí 2005 til 31. desember 2005, eða úr 45 kr. í 41 kr. á hvern lítra af gjaldskyldri olíu. Með lögum nr. 126/2005, um breyting á lögum nr. 87/2004, um olíugjald og kílómetragjald o.fl., með síðari breytingum, var sú tímabundna lækkun framlengd til 1. júlí 2006. Eins og fram kom í greinargerð með framangreindum frumvörpum var markmið þessarar tímabundnu lækkunar að bregðast við óhagstæðri þróun á heimsmarkaðsverði á dísilolíu samanborið við heimsmarkaðsverð á bensíni.
Eitt af meginmarkmiðum laga nr. 87/2004, um olíugjald og kílómetragjald o.fl., er að innbyrðis samræmis sé gætt í skattlagningu á dísilolíu og bensíni þannig að dísilknúnar fólksbifreiðar verði álitlegri kostur fyrir einstaklinga en þær hafa verið hingað til og að sambærilegar rekstrarforsendur eigi við hvort sem bifreið er dísil- eða bensínknúin. Verð á dísilolíu á heimsmarkaði er enn óvenjuhátt í samanburði við heimsmarkaðsverð á bensíni og áfram ríkir óvissa um það hvernig heimsmarkaðsverð á dísilolíu og bensíni mun þróast innbyrðis á næstu mánuðum. Með vísan til þessa ástands er því með frumvarpi þessu lagt til að hin tímabundna lækkun olíugjalds verði framlengd um hálft ár, eða fram til 31. desember 2006. Sömu tillögu er að finna í frumvarpinu varðandi sérstaka kílómetragjaldið til samræmis við olíugjaldið.
Í frumvarpinu er einnig lagt til að björgunarsveitum verði heimilt að nota litaða gjaldfrjálsa olíu á ökutæki sín en í staðinn greiði þær sérstakt kílómetragjald af akstri þeirra. Við upptöku olíugjalds jukust álögur á starfsemi björgunarsveita vegna reksturs dísilbifreiða nokkuð frá því sem var í þungaskattskerfinu, enda er olíueyðsla þessara farartækja oftar en ekki í litlu samræmi við ekna kílómetra. Þessari tillögu er ætlað að draga úr þeim álögum þannig að kostnaður björgunarsveitanna verði svipaður og hann var fyrir upptöku olíugjaldsins, þ.e. í formi þungaskatts. Samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkisskattstjóra var álagður þungaskattur á farartæki í eigu björgunarsveita tæpar 6 m.kr. á árinu 2004.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Um 2. gr.
Um 3. gr.
Um 4. gr.
Um 5. gr.
Um 6. gr.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 87/2004,
um olíugjald og kílómetragjald o.fl., með síðari breytingum.