Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 45. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 45 — 45. mál.
um breytingu á lögum nr. 96/2000, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.
Jafnréttisstofa getur með sömu skilyrðum og í 1. mgr. krafist þess að fá gögn afhent til athugunar. Skulu þau afhent innan hæfilegs frests sem stofan setur.
Jafnréttisstofa getur einnig lagt skyldu á þá aðila sem um getur í 1. mgr. að upplýsa stofuna reglulega um atriði sem máli skipta við framkvæmd laga þessara. Jafnréttisstofa getur gefið slík fyrirmæli með opinberri tilkynningu.
Jafnréttisstofa getur við rannsókn máls gert nauðsynlegar athuganir á starfsstöð fyrirtækis og lagt hald á gögn þegar ríkar ástæður eru til að ætla að brotið hafi verið gegn lögum þessum eða fyrirmælum Jafnréttisstofu.
Við framkvæmd lagagreinar þessarar skal fylgja ákvæðum laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og laga um meðferð opinberra mála um leit og hald á munum.
Þegar sérstaklega stendur á og ætla má að úrskurður dómstóla geti haft víðtæk áhrif í átt til jafnréttis eða hagsmunir kæranda eru metnir þess eðlis að mikilvægt þykir að fá úrlausn dómstóla getur Jafnréttisstofa höfðað mál til viðurkenningar á rétti kæranda á grundvelli álitsgerða kærunefndar jafnréttismála skv. 5. gr. Ráðherra setur í reglugerð nánari fyrirmæli um skilyrði fyrir málshöfðunarheimild Jafnréttisstofu.
Kærunefnd jafnréttismála getur við meðferð kærumála falið Jafnréttisstofu að afla allra tiltækra upplýsinga og gagna skv. 4. gr.
Í sérhverju fyrirtæki og stofnun þar sem starfa fleiri en 25 starfsmenn skulu þeir kjósa jafnréttisfulltrúa sem fjallar um og hefur eftirlit með jafnréttisáætlun, að jafnréttis sé gætt í starfsmannastefnu og að farið sé að öðru leyti að lögum þessum. Jafnréttisfulltrúarnir skulu njóta sömu réttinda og bera sömu skyldur og trúnaðarmenn samkvæmt lögum nr. 80/1938, um stéttarfélög og vinnudeilur, og kjarasamningum sem um störf þeirra gilda.
Við skipun í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga skal þess gætt að hlutfall kynjanna verði sem jafnast. Skal ávallt á það minnt þegar óskað er tilnefningar í hlutaðeigandi nefndir, ráð og stjórnir og skulu tilnefningaraðilar tilnefna einn karl og eina konu í þær.
Þegar lög þessi hafa öðlast gildi skal fella meginmál þeirra inn í lög nr. 96 22. maí 2000 og gefa þau út með samfelldri greinatölu svo breytt.
Hér er endurflutt frumvarp sem fyrst var lagt fram á vorþingi 2004 (þskj. 844, 565. mál á 130. löggjafarþingi) og síðan endurflutt vorið 2005 (þskj. 930, 620. mál á 131. löggjafarþingi). Atli Gíslason varaþingmaður var fyrsti flutningsmaður í bæði skiptin og hefur haft frumkvæði að málinu.
Með frumvarpinu er lögð til breyting á lögum nr. 96/2000 í þeim tilgangi að vinna gegn kynbundnum launamun og öðru misrétti kynjanna.
Í 65. gr. stjórnarskrárinnar er mælt fyrir um að allir skuli vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis og að konur og karlar skuli njóta jafns réttar í hvívetna. Engu síður er það staðreynd að kynbundinn launamunur er talinn vera á bilinu 14–18% þegar borin eru saman laun fyrir sambærileg og jafnverðmæt störf. Kerfisbundinn launamunur hefur verið viðvarandi um árabil og engin teikn á lofti um breytingar. Með kynbundnum launamun er að sjálfsögðu brotið í bága við jafnréttisákvæði stjórnarskrárinnar og enn fremur við lög nr. 96/2000, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, og hann misbýður réttlætiskennd fólks. Þessi mismunun leiðir til annars misréttis og hindrar þátttöku kvenna á jafnréttisgrundvelli í stjórnmála-, efnahags-, félags- og menningarlífi. Fleiri staðreyndir um misrétti kynjanna liggja fyrir. Heildaratvinnutekjur kvenna eru að jafnaði um 60% af atvinnutekjum karla, heildaratvinnutekjur kvenna meðal opinberra starfsmanna eru um 86% af atvinnutekjum karla, um 30% einstæðra mæðra hafa framfærslu af tekjum undir fátæktarmörkum og konur eru aðeins um 20% af forstöðumönnum ráðuneyta og ríkisstofnana svo að fátt eitt sé nefnt. Verk karla eru meira metin en verk kvenna. Kvennastörf eru hvorki metin að félagslegum né fjárhagslegum verðleikum. Karlar eru „viðmið“ (norm) en konur „frávik“ og á þeim hugmyndum byggist óskráður kynbundinn og karllægur samfélagssamningur sem stjórnar aðstæðum kynjanna félagslega, efnahagslega og pólitískt. Allt eru þetta þekktar staðreyndir og það er einnig staðreynd að vilji er allt sem þarf til að koma á raunverulegu jafnrétti.
Í samræmdri könnun sem gerð var í sex Evrópulöndum árið 2002 og dr. Þorgerður Einarsdóttir, lektor í kynjafræði við Háskóla Íslands, hafði umsjón með hér á landi kemur í ljós að á Íslandi er kynbundinn launamunur á almenna vinnumarkaðnum meiri en á hinum opinbera. Þetta er í samræmi við launakannanir sem Félagsvísindastofnun hefur gert fyrir Verslunarmannafélag Reykjavíkur annars vegar og launakannanir Reykjavíkurborgar hins vegar. Þetta skýrist að hluta til af því að kjaraákvarðanir eru í meira mæli einstaklingsbundnar á almennum vinnumarkaði en algengara er að miðstýrðir kjarasamningar séu hafðir til viðmiðunar á opinbera vinnumarkaðnum. Starfsfólki á almennum vinnumarkaði fer fjölgandi og sífellt algengara er að samið sé um laun á einstaklingsgrundvelli. Þessar staðreyndir ásamt landlægri launaleynd gera það að verkum að sífellt erfiðara verður að fylgjast með launum, launaþróun og launamisrétti. Ýmsar vísbendingar eru um að kynbundið launamisrétti hafi fundið sér nýjan farveg í aukagreiðslum, svo sem bílahlunnindum, óunninni yfirvinnu og dagpeningum, en slíkt má meðal annars lesa út úr launakönnun Reykjavíkurborgar frá árinu 2001. Engin ráð eru nú til að fylgjast með því hvernig körlum er hyglað með greiðslum af þessu tagi og slíkar upplýsingar eru takmarkaðar hjá kjararannsóknarnefndum. Ekkert bendir hins vegar til þess að launamunur fari minnkandi, alþjóðlegar rannsóknir benda þvert á móti til þess að kynbundinn launamunur aukist á næstu árum með auknum einstaklingslaunasamningum verði ekkert að gert.
Ljóst er að lagasetningar hafa ekki dugað til og sértækar aðgerðir hafa heldur ekki skilað þeim árangri sem stefnt var að. Jafnréttissinnar hafa því í auknum mæli beint sjónum sínum að kerfislægri mismunun kynjanna en góð stjórnvaldstæki þarf til að vinna á rótgrónum stöðumun kynjanna á vinnumarkaði. Heimild fyrir opinbera stofnun til að afla gagna og vinna úr þeim upplýsingar er nauðsynlegt tæki til að greina stöðuna til að geta gripið til aðgerða.
Frumvarpið felur í sér að Jafnréttisstofu verði veittar heimildir til að ganga úr skugga um það með rannsókn og gagnaöflun hvort réttindum og skyldum skv. III. kafla jafnréttislaganna sé fullnægt, svo sem um launajafnrétti, og tryggt sé að bannákvæðum IV. kafla þeirra sé framfylgt. Er gert ráð fyrir að Jafnréttisstofa geti hafið rannsókn og gagnaöflun að eigin frumkvæði, að mótteknum kvörtunum eða í kjölfar kæru til kærunefndar jafnréttismála. Um viðlíka heimildir er til að mynda mælt fyrir í skattalögum, samkeppnislögum og lögum um eftirlit með fjármálastarfsemi. Sýnu veigameiri eru rökin fyrir því að veita Jafnréttisstofu sambærilegar heimildir til að tryggja konum stjórnarskrárbundin mannréttindi.
Í nýrri fjórðu grein laganna samkvæmt frumvarpinu yrði mælt fyrir um nýmæli í anda heimilda og úrræða sem kveðið er á um í 1. mgr. 11. gr. gildandi laga um skipun jafnréttisfulltrúa hjá sérhverju ráðuneyti og hlutverk þeirra, en þó yrði mælt fyrir um aukin verkefni jafnréttisfulltrúa hjá einkafyrirtækjum. Að mati sérfróðra aðila um jafnréttismál og samkvæmt tölfræðilegum upplýsingum er staða kvenna hjá einkafyrirtækjum verri en hjá ríki og sveitarfélögum og jafnréttisáætlanir þeirra virðast ekki skila tilætluðum árangri. Þar er bæði kynbundinn launamunur og munur á heildartekjum karla og kvenna meiri. Valdaleysi kvenna í stjórnum einkafyrirtækja, einkum stórfyrirtækja, er einnig sláandi og endurspeglar í engu menntun þeirra, hæfni og reynslu. Þá er þess að geta að starfsmenn ríkis og sveitarfélaga njóta réttinda og meiri verndar gegn mismunun samkvæmt stjórnsýslulögum og upplýsingalögum sem ekki hafa verið yfirfærð á einkarekstur.
Í 5. gr. er lögð til breyting á 20. gr. gildandi laga um þátttöku í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum hins opinbera. Ákvæðið er að gefnu tilefni gert markvissara og lagt til að sami háttur verði á hafður við skipun og tilnefningu í nefndir, ráð og stjórnir ríkis og sveitarfélaga og við tilnefningar og skipun í Jafnréttisráð skv. 2. mgr. 7. gr. laganna. Lagt er til að tilnefningaraðilar tilnefni einn karl og eina konu þannig að veitingarvaldið hafi val og geti við það gætt þess að hlutfall kynjanna verði sem jafnast. Með lögfestingu þessarar tillögu má ætla að það muni heyra sögunni til að nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga verði eingöngu eða að miklum meiri hluta skipaðar körlum.
Á vorþingi 2004 var frumvarp sama efnis tekið til 1. umræðu og vísað til félagsmálanefndar sem fjallaði ekki um málið. Því miður virðist vera enn brýnni nauðsyn á þeim úrræðum sem frumvarpið felur í sér nú en fyrir ári. Rökin standa öll óhögguð. Það hefur ekkert þokast í þjóðfélaginu í átt til launajafnréttis. Mannréttindabrot á konum, viðvarandi kynbundinn launamunur og fákvenni í nefndum, stjórnum og ráðum eru jafnóþolandi og fyrr. Það er yfirlýst markmið ríkisstjórnarinnar allt frá árinu 1998 að jafna launamun kynjanna og gæta að jafnrétti við opinbera stefnumótun. Frumvarpið samræmist þeim markmiðum. Þeir stjórnmálaflokkar sem eiga fulltrúa á Alþingi hafa einnig gefið ítrekuð fyrirheit um að jafna stöðu kvenna. Hér gefst þeim tækifæri til að efna loforð sín og rétta hlut kvenna verulega með stjórnsýsluúrræðum og rjúfa kyrrstöðuna í jafnréttismálum.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 45 — 45. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 96/2000, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.
Flm.: Kolbrún Halldórsdóttir, Jón Bjarnason, Steingrímur J. Sigfússon,
Hlynur Hallsson, Ögmundur Jónasson.
1. gr.
2. gr.
Upplýsingaskylda.
Jafnréttisstofa getur með sömu skilyrðum og í 1. mgr. krafist þess að fá gögn afhent til athugunar. Skulu þau afhent innan hæfilegs frests sem stofan setur.
Jafnréttisstofa getur einnig lagt skyldu á þá aðila sem um getur í 1. mgr. að upplýsa stofuna reglulega um atriði sem máli skipta við framkvæmd laga þessara. Jafnréttisstofa getur gefið slík fyrirmæli með opinberri tilkynningu.
Jafnréttisstofa getur við rannsókn máls gert nauðsynlegar athuganir á starfsstöð fyrirtækis og lagt hald á gögn þegar ríkar ástæður eru til að ætla að brotið hafi verið gegn lögum þessum eða fyrirmælum Jafnréttisstofu.
Við framkvæmd lagagreinar þessarar skal fylgja ákvæðum laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og laga um meðferð opinberra mála um leit og hald á munum.
Þegar sérstaklega stendur á og ætla má að úrskurður dómstóla geti haft víðtæk áhrif í átt til jafnréttis eða hagsmunir kæranda eru metnir þess eðlis að mikilvægt þykir að fá úrlausn dómstóla getur Jafnréttisstofa höfðað mál til viðurkenningar á rétti kæranda á grundvelli álitsgerða kærunefndar jafnréttismála skv. 5. gr. Ráðherra setur í reglugerð nánari fyrirmæli um skilyrði fyrir málshöfðunarheimild Jafnréttisstofu.
3. gr.
Kærunefnd jafnréttismála getur við meðferð kærumála falið Jafnréttisstofu að afla allra tiltækra upplýsinga og gagna skv. 4. gr.
4. gr.
Í sérhverju fyrirtæki og stofnun þar sem starfa fleiri en 25 starfsmenn skulu þeir kjósa jafnréttisfulltrúa sem fjallar um og hefur eftirlit með jafnréttisáætlun, að jafnréttis sé gætt í starfsmannastefnu og að farið sé að öðru leyti að lögum þessum. Jafnréttisfulltrúarnir skulu njóta sömu réttinda og bera sömu skyldur og trúnaðarmenn samkvæmt lögum nr. 80/1938, um stéttarfélög og vinnudeilur, og kjarasamningum sem um störf þeirra gilda.
5. gr.
Við skipun í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga skal þess gætt að hlutfall kynjanna verði sem jafnast. Skal ávallt á það minnt þegar óskað er tilnefningar í hlutaðeigandi nefndir, ráð og stjórnir og skulu tilnefningaraðilar tilnefna einn karl og eina konu í þær.
6. gr.
Þegar lög þessi hafa öðlast gildi skal fella meginmál þeirra inn í lög nr. 96 22. maí 2000 og gefa þau út með samfelldri greinatölu svo breytt.
Greinargerð.
Hér er endurflutt frumvarp sem fyrst var lagt fram á vorþingi 2004 (þskj. 844, 565. mál á 130. löggjafarþingi) og síðan endurflutt vorið 2005 (þskj. 930, 620. mál á 131. löggjafarþingi). Atli Gíslason varaþingmaður var fyrsti flutningsmaður í bæði skiptin og hefur haft frumkvæði að málinu.
Með frumvarpinu er lögð til breyting á lögum nr. 96/2000 í þeim tilgangi að vinna gegn kynbundnum launamun og öðru misrétti kynjanna.
Í 65. gr. stjórnarskrárinnar er mælt fyrir um að allir skuli vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis og að konur og karlar skuli njóta jafns réttar í hvívetna. Engu síður er það staðreynd að kynbundinn launamunur er talinn vera á bilinu 14–18% þegar borin eru saman laun fyrir sambærileg og jafnverðmæt störf. Kerfisbundinn launamunur hefur verið viðvarandi um árabil og engin teikn á lofti um breytingar. Með kynbundnum launamun er að sjálfsögðu brotið í bága við jafnréttisákvæði stjórnarskrárinnar og enn fremur við lög nr. 96/2000, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, og hann misbýður réttlætiskennd fólks. Þessi mismunun leiðir til annars misréttis og hindrar þátttöku kvenna á jafnréttisgrundvelli í stjórnmála-, efnahags-, félags- og menningarlífi. Fleiri staðreyndir um misrétti kynjanna liggja fyrir. Heildaratvinnutekjur kvenna eru að jafnaði um 60% af atvinnutekjum karla, heildaratvinnutekjur kvenna meðal opinberra starfsmanna eru um 86% af atvinnutekjum karla, um 30% einstæðra mæðra hafa framfærslu af tekjum undir fátæktarmörkum og konur eru aðeins um 20% af forstöðumönnum ráðuneyta og ríkisstofnana svo að fátt eitt sé nefnt. Verk karla eru meira metin en verk kvenna. Kvennastörf eru hvorki metin að félagslegum né fjárhagslegum verðleikum. Karlar eru „viðmið“ (norm) en konur „frávik“ og á þeim hugmyndum byggist óskráður kynbundinn og karllægur samfélagssamningur sem stjórnar aðstæðum kynjanna félagslega, efnahagslega og pólitískt. Allt eru þetta þekktar staðreyndir og það er einnig staðreynd að vilji er allt sem þarf til að koma á raunverulegu jafnrétti.
Í samræmdri könnun sem gerð var í sex Evrópulöndum árið 2002 og dr. Þorgerður Einarsdóttir, lektor í kynjafræði við Háskóla Íslands, hafði umsjón með hér á landi kemur í ljós að á Íslandi er kynbundinn launamunur á almenna vinnumarkaðnum meiri en á hinum opinbera. Þetta er í samræmi við launakannanir sem Félagsvísindastofnun hefur gert fyrir Verslunarmannafélag Reykjavíkur annars vegar og launakannanir Reykjavíkurborgar hins vegar. Þetta skýrist að hluta til af því að kjaraákvarðanir eru í meira mæli einstaklingsbundnar á almennum vinnumarkaði en algengara er að miðstýrðir kjarasamningar séu hafðir til viðmiðunar á opinbera vinnumarkaðnum. Starfsfólki á almennum vinnumarkaði fer fjölgandi og sífellt algengara er að samið sé um laun á einstaklingsgrundvelli. Þessar staðreyndir ásamt landlægri launaleynd gera það að verkum að sífellt erfiðara verður að fylgjast með launum, launaþróun og launamisrétti. Ýmsar vísbendingar eru um að kynbundið launamisrétti hafi fundið sér nýjan farveg í aukagreiðslum, svo sem bílahlunnindum, óunninni yfirvinnu og dagpeningum, en slíkt má meðal annars lesa út úr launakönnun Reykjavíkurborgar frá árinu 2001. Engin ráð eru nú til að fylgjast með því hvernig körlum er hyglað með greiðslum af þessu tagi og slíkar upplýsingar eru takmarkaðar hjá kjararannsóknarnefndum. Ekkert bendir hins vegar til þess að launamunur fari minnkandi, alþjóðlegar rannsóknir benda þvert á móti til þess að kynbundinn launamunur aukist á næstu árum með auknum einstaklingslaunasamningum verði ekkert að gert.
Ljóst er að lagasetningar hafa ekki dugað til og sértækar aðgerðir hafa heldur ekki skilað þeim árangri sem stefnt var að. Jafnréttissinnar hafa því í auknum mæli beint sjónum sínum að kerfislægri mismunun kynjanna en góð stjórnvaldstæki þarf til að vinna á rótgrónum stöðumun kynjanna á vinnumarkaði. Heimild fyrir opinbera stofnun til að afla gagna og vinna úr þeim upplýsingar er nauðsynlegt tæki til að greina stöðuna til að geta gripið til aðgerða.
Frumvarpið felur í sér að Jafnréttisstofu verði veittar heimildir til að ganga úr skugga um það með rannsókn og gagnaöflun hvort réttindum og skyldum skv. III. kafla jafnréttislaganna sé fullnægt, svo sem um launajafnrétti, og tryggt sé að bannákvæðum IV. kafla þeirra sé framfylgt. Er gert ráð fyrir að Jafnréttisstofa geti hafið rannsókn og gagnaöflun að eigin frumkvæði, að mótteknum kvörtunum eða í kjölfar kæru til kærunefndar jafnréttismála. Um viðlíka heimildir er til að mynda mælt fyrir í skattalögum, samkeppnislögum og lögum um eftirlit með fjármálastarfsemi. Sýnu veigameiri eru rökin fyrir því að veita Jafnréttisstofu sambærilegar heimildir til að tryggja konum stjórnarskrárbundin mannréttindi.
Í nýrri fjórðu grein laganna samkvæmt frumvarpinu yrði mælt fyrir um nýmæli í anda heimilda og úrræða sem kveðið er á um í 1. mgr. 11. gr. gildandi laga um skipun jafnréttisfulltrúa hjá sérhverju ráðuneyti og hlutverk þeirra, en þó yrði mælt fyrir um aukin verkefni jafnréttisfulltrúa hjá einkafyrirtækjum. Að mati sérfróðra aðila um jafnréttismál og samkvæmt tölfræðilegum upplýsingum er staða kvenna hjá einkafyrirtækjum verri en hjá ríki og sveitarfélögum og jafnréttisáætlanir þeirra virðast ekki skila tilætluðum árangri. Þar er bæði kynbundinn launamunur og munur á heildartekjum karla og kvenna meiri. Valdaleysi kvenna í stjórnum einkafyrirtækja, einkum stórfyrirtækja, er einnig sláandi og endurspeglar í engu menntun þeirra, hæfni og reynslu. Þá er þess að geta að starfsmenn ríkis og sveitarfélaga njóta réttinda og meiri verndar gegn mismunun samkvæmt stjórnsýslulögum og upplýsingalögum sem ekki hafa verið yfirfærð á einkarekstur.
Í 5. gr. er lögð til breyting á 20. gr. gildandi laga um þátttöku í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum hins opinbera. Ákvæðið er að gefnu tilefni gert markvissara og lagt til að sami háttur verði á hafður við skipun og tilnefningu í nefndir, ráð og stjórnir ríkis og sveitarfélaga og við tilnefningar og skipun í Jafnréttisráð skv. 2. mgr. 7. gr. laganna. Lagt er til að tilnefningaraðilar tilnefni einn karl og eina konu þannig að veitingarvaldið hafi val og geti við það gætt þess að hlutfall kynjanna verði sem jafnast. Með lögfestingu þessarar tillögu má ætla að það muni heyra sögunni til að nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga verði eingöngu eða að miklum meiri hluta skipaðar körlum.
Á vorþingi 2004 var frumvarp sama efnis tekið til 1. umræðu og vísað til félagsmálanefndar sem fjallaði ekki um málið. Því miður virðist vera enn brýnni nauðsyn á þeim úrræðum sem frumvarpið felur í sér nú en fyrir ári. Rökin standa öll óhögguð. Það hefur ekkert þokast í þjóðfélaginu í átt til launajafnréttis. Mannréttindabrot á konum, viðvarandi kynbundinn launamunur og fákvenni í nefndum, stjórnum og ráðum eru jafnóþolandi og fyrr. Það er yfirlýst markmið ríkisstjórnarinnar allt frá árinu 1998 að jafna launamun kynjanna og gæta að jafnrétti við opinbera stefnumótun. Frumvarpið samræmist þeim markmiðum. Þeir stjórnmálaflokkar sem eiga fulltrúa á Alþingi hafa einnig gefið ítrekuð fyrirheit um að jafna stöðu kvenna. Hér gefst þeim tækifæri til að efna loforð sín og rétta hlut kvenna verulega með stjórnsýsluúrræðum og rjúfa kyrrstöðuna í jafnréttismálum.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Um 2. gr.
Um 3. gr.
Um 4. gr.
Um 5. gr.
Um 6. gr.