Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 616. máls.
Þskj. 901 — 616. mál.
Þessi breyting kemur til vegna ákvæða samnings um Evrópska efnahagssvæðið (EES- samningsins), sbr. lög nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið. Hér er sérstaklega verið að vísa til reglna EES-samningsins um staðfesturétt og frjálsa fjármagnsflutninga. Í 31. gr. EES- samningsins er kveðið á um svokallaðan staðfesturétt en hann felur í sér rétt fyrir einstaklinga og lögaðila í einu aðildarríki EES til að stunda atvinnustarfsemi í öðru aðildarríki með sömu skilyrðum og einstaklingar og fyrirtæki í því ríki. Í 40. gr. EES-samningsins er kveðið á um frjálsa fjármagnsflutninga en þar segir m.a. að engin höft skuli vera á milli samningsaðila á flutningi fjármagns í eigu þeirra sem búsettir eru í aðildarríkjum EB eða EFTA-ríkjum eða nokkur mismunun, byggð á ríkisfangi eða búsetu aðila eða á því hvar féð er notað til fjárfestingar. Af þessum sökum er talið að skilyrði a-liðar 1. mgr. 3. gr. laga nr. 79/2005 eigi ekki að ná til borgara frá Evrópska efnahagssvæðinu. Þá er einnig talið að skilyrði a-liðar 1. mgr. 3. gr. laga nr. 79/2005 eigi ekki við um borgara frá Sviss og Færeyjum vegna ákvæða nýs stofnsamnings EFTA sem undirritaður var í Vaduz í Liechtenstein 21. júní 2001 og samnings Íslands við Færeyjar um fríverslun sem undirritaður var 31. ágúst 2005.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Að mati fjármálaráðuneytisins hefur frumvarpið hvorki áhrif á gjöld né tekjur ríkissjóðs.
Þskj. 901 — 616. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 79 24. maí 2005,
um uppboðsmarkaði sjávarafla.
(Lagt fyrir Alþingi á 132. löggjafarþingi 2005–2006.)
1. gr.
2. gr.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Þessi breyting kemur til vegna ákvæða samnings um Evrópska efnahagssvæðið (EES- samningsins), sbr. lög nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið. Hér er sérstaklega verið að vísa til reglna EES-samningsins um staðfesturétt og frjálsa fjármagnsflutninga. Í 31. gr. EES- samningsins er kveðið á um svokallaðan staðfesturétt en hann felur í sér rétt fyrir einstaklinga og lögaðila í einu aðildarríki EES til að stunda atvinnustarfsemi í öðru aðildarríki með sömu skilyrðum og einstaklingar og fyrirtæki í því ríki. Í 40. gr. EES-samningsins er kveðið á um frjálsa fjármagnsflutninga en þar segir m.a. að engin höft skuli vera á milli samningsaðila á flutningi fjármagns í eigu þeirra sem búsettir eru í aðildarríkjum EB eða EFTA-ríkjum eða nokkur mismunun, byggð á ríkisfangi eða búsetu aðila eða á því hvar féð er notað til fjárfestingar. Af þessum sökum er talið að skilyrði a-liðar 1. mgr. 3. gr. laga nr. 79/2005 eigi ekki að ná til borgara frá Evrópska efnahagssvæðinu. Þá er einnig talið að skilyrði a-liðar 1. mgr. 3. gr. laga nr. 79/2005 eigi ekki við um borgara frá Sviss og Færeyjum vegna ákvæða nýs stofnsamnings EFTA sem undirritaður var í Vaduz í Liechtenstein 21. júní 2001 og samnings Íslands við Færeyjar um fríverslun sem undirritaður var 31. ágúst 2005.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 79/2005,
um uppboðsmarkað á sjávarafla.