133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1216 — 654. mál.
Frumvarp til laga
um breytingar á ýmsum lögum er varða útgáfu leyfa o.fl.
(Eftir 2. umr., 15. mars.)
I. KAFLI
Breyting á iðnaðarlögum, nr. 42 18. maí 1978, með síðari breytingum.
1. gr.
II. KAFLI
Breyting á lögum um lögskráningu sjómanna, nr. 43 30. mars 1987,
með síðari breytingum.
2. gr.
a. Á eftir orðinu „Tollstjórar“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: og sýslumenn, að undanskildum sýslumönnunum í Reykjavík og Keflavík.
b. Á eftir orðinu „tollstjórum“ í 2. og 3. málsl. 1. mgr. kemur: og sýslumönnum.
c. Á eftir orðinu „tollstjóra“ fyrra sinni í 1. málsl. 2. mgr. kemur: og sýslumanna.
d. Á eftir orðinu „tollstjóra“ síðara sinni í 1. málsl. 2. mgr. kemur: eða sýslumanna.
e. Á eftir orðinu „tollstjóra“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: eða sýslumanns.
f. 3. málsl. 2. mgr. orðast svo: Tollstjórar og sýslumenn skulu hafa eftirlit með lögskráningarfulltrúum í umdæmum sínum.
III. KAFLI
Breyting á umferðarlögum, nr. 50 30. mars 1987, með síðari breytingum.
3. gr.
a. 1. málsl. 1. mgr. orðast svo: Enginn má stjórna bifreið eða bifhjóli nema hann hafi til þess gilt ökuskírteini sem ríkislögreglustjórinn gefur út.
b. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ríkislögreglustjórinn getur falið sýslumönnum og lögreglustjórum að annast útgáfu ökuskírteina.
4. gr.
Í stað orðsins „lögreglustjóri“ í 1. og 2. málsl. 1. mgr. 53. gr. laganna kemur: útgefandi ökuréttinda.5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 56. gr. laganna:a. Í stað orðsins „ríkislögreglustjóra“ í 1. mgr. kemur: sýslumanns, að undanskildum sýslumanninum í Reykjavík, en lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu fer með það hlutverk.
b. Í stað orðsins „Ríkislögreglustjóri“ í 6. mgr. kemur: Útgefandi ökukennararéttinda.
6. gr.
Í stað orðanna „ríkislögreglustjóri“ og „ríkislögreglustjóra“ í 1. málsl. 1. mgr. og 1. málsl. 3. mgr. 106. gr. laganna kemur í viðeigandi beygingarfalli: lögreglustjóri. IV. KAFLI
Breyting á lögum um framkvæmdarvald ríkisins í héraði, nr. 92 1. júní 1989,
með síðari breytingum.
7. gr.
Sýslumenn í hverju umdæmi skulu veita leyfisumsóknum viðtöku fyrir hönd lögreglustjóra umdæmisins.
8. gr.
Við 6. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Sýslumenn og löglærðir fulltrúar þeirra skulu bera einkennisfatnað eftir því sem ráðherra ákveður í reglugerð.
V. KAFLI
Breyting á lögum um sinubrennur og meðferð elds á víðavangi,
nr. 61 1. júní 1992, með síðari breytingum.
9. gr.
VI. KAFLI
Breyting á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu,
nr. 36 4. maí 1993, með síðari breytingum.
10. gr.
VII. KAFLI
Breyting á vopnalögum, nr. 16 25. mars 1998, með síðari breytingum.
11. gr.
12. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:a. Í stað orðanna „nema með leyfi ríkislögreglustjóra“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: í atvinnuskyni nema með leyfi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.
b. 3. málsl. 1. mgr. fellur brott.
c. Orðið „lögreglustjóra“ í 4. málsl. 1. mgr. fellur brott.
d. Í stað orðsins „Ríkislögreglustjóra“ í 2. mgr. og 2. málsl. 3. mgr. kemur: Lögreglustjóra.
e. Í stað orðsins „ríkislögreglustjóra“ í 1. málsl. 7. mgr. kemur: lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, að fenginni umsögn ríkislögreglustjóra.
f. Í stað orðanna „Ríkislögreglustjóri getur og“ í 2. málsl. 7. mgr. kemur: Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu getur og, að fenginni umsögn ríkislögreglustjóra.
13. gr.
1. mgr. 6. gr. laganna orðast svo:Enginn má flytja úr landi skotvopn, skotfæri, sprengiefni eða skotelda nema með leyfi lögreglustjóra, enda liggi fyrir staðfesting frá þar til bærum yfirvöldum um heimild fyrir innflutningi. Ákvæði þetta á aðeins við þegar um varanlegan útflutning er að ræða.
14. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:a. Í stað orðsins „ríkislögreglustjóra“ í 1. mgr. kemur: lögreglustjóra.
b. 4. mgr. orðast svo:
Í sérstökum tilvikum er heimilt að veita félagasamtökum leyfi til að selja skotelda í smásölu.
c. Orðin „lögreglustjóra og“ í 6. mgr. falla brott.
d. Í stað orðsins „ríkislögreglustjóra“ í 7. mgr. kemur: lögreglustjóra.
15. gr.
Í stað orðsins „Ríkislögreglustjóra“ í 1. mgr. 8. gr. laganna kemur: Lögreglustjóra.16. gr.
2. mgr. 14. gr. laganna fellur brott.17. gr.
Í stað orðanna „Ríkislögreglustjóri“ og „ríkislögreglustjóra“ í 1. málsl. 1. mgr. og 1. málsl. 2. mgr. 15. gr. laganna kemur í viðeigandi beygingarfalli: lögreglustjóri.18. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 17. gr. laganna:a. Í stað orðsins „ríkislögreglustjóra“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: lögreglustjóra.
b. 2. málsl. 1. mgr. fellur brott.
19. gr.
Síðari málsliður 4. mgr. 30. gr. laganna orðast svo: Sama gildir um úðavopn, svo sem gasvopn og táragasvopn.VIII. KAFLI
Breyting á lögum um verslunaratvinnu, nr. 28 8. apríl 1998, með síðari breytingum.
20. gr.
IX. KAFLI
Gildistaka.
21. gr.