Þskj. 516 — 428. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000, með síðari breytingum.
(Lagt fyrir Alþingi á 133. löggjafarþingi 2006–2007.)
1. gr.
2. gr.
3. gr.
a. Í stað orðanna „Tryggingastofnunar ríkisins“ í 1. mgr. kemur: Vinnumálastofnunar.
b. Í stað orðsins „Tryggingastofnun“ í 1. mgr. kemur: Vinnumálastofnun.
c. Í stað orðanna „Tryggingastofnun ríkisins“ hvarvetna í 3., 4. og 5. mgr. kemur: Vinnumálastofnun.
d. Í stað orðanna „Tryggingastofnunar ríkisins“ í fyrirsögn kemur: Vinnumálastofnunar.
4. gr.
a. Í stað orðanna „Tryggingastofnun ríkisins“ í 1. mgr. kemur: Vinnumálastofnun.
b. Í stað orðanna „Tryggingastofnunar ríkisins“ í 2. mgr. kemur: Vinnumálastofnunar.
c. Í stað orðanna „Tryggingastofnun ríkisins“ í 5. mgr. kemur: Vinnumálastofnun.
5. gr.
6. gr.
7. gr.
a. Í stað orðanna „Tryggingastofnunar ríkisins“ í 1. mgr. kemur: Vinnumálastofnunar.
b. Í stað orðsins „Tryggingastofnunar“ í 3. mgr. kemur: Vinnumálastofnunar.
c. Í stað orðanna „Tryggingastofnunar ríkisins“ í fyrirsögn kemur: Vinnumálastofnunar.
8. gr.
2. mgr. 33. gr. laganna orðast svo:
Foreldri sem nýtur greiðslna í fæðingarorlofi á ekki rétt til sjúkradagpeninga og lífeyrisgreiðslna samkvæmt lögum um almannatryggingar vegna sama barns.
9. gr.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Á Alþingi hafa að undanförnu komið fram fyrirspurnir um samræmingu greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000, með síðari breytingum, annars vegar og umönnunargreiðslna samkvæmt lögum um félagslega aðstoð, nr. 118/1993, með síðari breytingum, hins vegar. Fram til þessa hafa greiðslur í fæðingarorlofi og réttur til umönnunargreiðslna ekki farið saman, þ.e. foreldrar sem átt hafa rétt til greiðslna í fæðingarorlofi hafa ekki á sama tíma átt rétt til umönnunargreiðslna.Félagsmálaráðherra upplýsti í fyrirspurnatíma á Alþingi að hann hygðist beita sér fyrir breytingu á þessu og er frumvarp þetta samið í framhaldi af því.
Að auki er nauðsynlegt að gera breytingar á lögunum þar sem félagsmálaráðherra hefur ákveðið í samræmi við 2. mgr. 4. gr. laga nr. 95/2000, sbr. 1. gr. laga nr. 90/2004, að fela Vinnumálastofnun vörslu Fæðingarorlofssjóðs. Fram að þessu hefur varsla sjóðsins verið hjá Tryggingastofnun ríkisins.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1.–4. gr.
Um 5. gr.
Um 6. gr.
Um 7. gr.
Um 8. gr.
Um 9. gr.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000, með síðari breytingum.
Áætlað er að kostnaður vegna umönnunargreiðslna hækki um 16 m.kr. þar sem hægt verður að fá þær um leið og fæðingarorlofsgreiðslur. Tímabundin kostnaður vegna undirbúnings á yfirtöku Vinnumálastofnunar á starfsemi fæðingarorlofssjóðs er áætlaður 37,5 m.kr. Hanna þarf nýjan hugbúnað, kaupa búnað og tæki og ráða starfsfólk og þjálfa svo verkefnið gangi eftir. Gert er ráð fyrir útgjöldunum í frumvarpinu til fjáraukalaga 2006. Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2007 er gert ráð fyrir 52 m.kr. í umsýslukostnað fyrir sjóðinn og er ekki gert ráð fyrir að sá kostnaður aukist.