Þskj. 93 — 93. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 62/1997, um heimild til samninga
um álbræðslu á Grundartanga, með síðari breytingum
.
(Lagt fyrir Alþingi á 133. löggjafarþingi 2006–2007.)
1. gr.
2. gr.
a. B-liður 1. tölul. fellur brott.
b. Við bætist nýr töluliður sem orðast svo: Félagið skal undanþegið breytingum sem kunna að verða á ákvæðum um frádrátt vaxtakostnaðar í lögum um tekjuskatt eftir undirritun samninga skv. 1. gr.
3. gr.
4. gr.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Með lögum nr. 62/1997 var iðnaðarráðherra veitt heimild til að gera samninga fyrir hönd ríkisstjórnarinnar um álver á Grundartanga. Eftir viðræður íslenskra stjórnvalda og fulltrúa Norðuráls hf. var ljóst að þörf var á tvenns konar breytingum á lögunum, annars vegar ákveðnum breytingum vegna ákvörðunar Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) í tengslum við stækkun álvers Norðuráls hf., og hins vegar lögðu fulltrúar Norðuráls hf. til breytingar á samningi sínum við ríkið sem kynnu að fela í sér breytingar á lögunum.
Með ákvörðun Eftirlitsstofnunar EFTA 1. júní 2005, vegna eftirgjafar á sköttum og öðrum gjöldum í þágu álvers Norðuráls ehf. á Grundartanga, kom fram að stofnunin teldi að íslenskum stjórnvöldum bæri að grípa til viðeigandi aðgerða til að gæta þess að samningar við Norðurál ehf. fælu ekki í sér óeðlilega mismunun á ríkisstyrkjum til aðila. Stofnunin taldi að breytinga væri þörf bæði á fjárfestingasamningi íslenskra stjórnvalda og Norðuráls ehf. sem og á lögum nr. 62/1997. Tilgangur frumvarps þessa er að verða við tilmælum stofnunarinnar í framangreindri ákvörðun.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Um 2. gr.
Enn fremur er lagt til að bætt verði við lögin ákvæði um að félagið skuli undanþegið breytingum sem kunna að verða á lagaákvæðum um frádrátt vaxtakostnaðar frá undiritun samninga skv. 1. gr laganna. Með breytingu þessari eru lögin samræmd öðrum lögum og samningum sem gerðir voru um álverksmiðju í Reyðarfirði, en sambærilegt ákvæði er að finna í 11. tölul. 1. mgr. 6. gr. laga um heimild til samninga um álverksmiðju í Reyðarfirði, nr. 12/2003.
Þegar fulltrúar íslenskra stjórnvalda undirrituðu samninga við Norðurál og Columbia Ventures voru í gildi lög nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, en ákvæði núgildandi laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, eru efnislega samhljóða ákvæðum þeirra að því er varðar frádrátt vaxtakostnaðar.
Um 3. gr.
Um 4. gr.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 62/1997,
um heimild til samninga um álbræðslu á Grundartanga.
Verði frumvarpið óbreytt að lögum verður ekki séð að það hafi í för með sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð og óveraleg áhrif á tekjur til hækkunar.