Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 461. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 919 — 461. mál.
um frv. til l. um tímabundna greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði.
Nefndin hefur fjallað um málið að nýju og leggur til að gildistöku frumvarpsins verði flýtt þannig að lögin taki gildi 15. maí nk. í stað 1. júlí eins og gert var ráð fyrir í upphafi. Ástæða frestunar gildistökunnar var sú að ástæða var talin til að gefa þeim opinberu stofnunum sem að málinu eiga að koma tíma til að undirbúa úrræðið. Nefndin telur þó að nægilegur tími gefist til undirbúnings þótt gildistöku sé flýtt og leggur áherslu á að tíminn fram að gildistöku verði einnig nýttur til að kynna úrræðið fyrir almenningi.
Nefndin ræddi einnig þann kostnað sem úrræðið getur haft í för með sér fyrir ríkissjóð og fékk kostnaðarumsögn frá fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytis sem unnin hafði verið fyrir dóms- og kirkjumálaráðuneytið þegar fyrirhugað var að flytja málið sem stjórnarfrumvarp. Kostnaðarumsögnin er birt sem fylgiskjal með álitinu. Nefndin tekur sérstaklega fram að í kostnaðarumsögninni er miðað við að kostnaður verði um 250 þús. kr. við hvert mál en nefndin lagði í frumvarpinu til að hámarksþóknun til umsjónarmanns við hvert mál yrði 200 þús. kr. og má því ætla að kostnaðurinn við hundrað mál verði um 20 millj. kr. og þúsund mál 200 millj. kr. Erfitt er að spá fyrir um hversu margir munu nýta sér úrræðið. Margt bendir til að umtalsverður fjöldi verði til þess, en einnig kann vel að vera að tilkoma þessa úrræðis greiði fyrir frjálsum samningum skuldara við kröfuhafa utan formlegrar greiðsluaðlögunarmeðferðar og þannig muni ekki jafnmargir nýta sér úrræðið og ella hefði orðið.
Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
Við 13. gr. Í stað orðanna „1. júlí 2009“ komi: 15. maí 2009.
Árni Þór Sigurðsson, Siv Friðleifsdóttir og Jón Magnússon voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Þóknun dómskipaðs umsjónarmanns skal greiða úr ríkissjóði og hefur verið áætlað að kostnaður við hvert slíkt mál sé um 250 þús. kr. Vegna álags í slíkum málum á næstunni má þó gera ráð fyrir að kostnaðurinn muni eitthvað hækka. Þess ber þó að geta að sé viðkomandi skuldari með aðrar samningskröfur í greiðsluaðlögunarmeðferð til nauðasamninga skal sameina málin og sami umsjónarmaður fara með sem eitt mál.
Verði frumvarpið óbreytt að lögum er nokkuð erfitt að áætla heildarkostnað fyrir ríkissjóð en í samræmi við áætlaðan kostnað við hvert mál verður kostnaður fyrir hver eitt hundrað mál á bilinu 25–30 m.kr. Ekki er gert ráð fyrir þessum auknu útgjöldum í fjárlögum ársins 2009 né í áætluðum útgjöldum næstu fjögur árin. Vegna mikils halla á ríkissjóði mun því að óbreyttu þurfa að fjármagna útgjöldin með lántökum.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 919 — 461. mál.
Nefndarálit
um frv. til l. um tímabundna greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði.
Frá allsherjarnefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið að nýju og leggur til að gildistöku frumvarpsins verði flýtt þannig að lögin taki gildi 15. maí nk. í stað 1. júlí eins og gert var ráð fyrir í upphafi. Ástæða frestunar gildistökunnar var sú að ástæða var talin til að gefa þeim opinberu stofnunum sem að málinu eiga að koma tíma til að undirbúa úrræðið. Nefndin telur þó að nægilegur tími gefist til undirbúnings þótt gildistöku sé flýtt og leggur áherslu á að tíminn fram að gildistöku verði einnig nýttur til að kynna úrræðið fyrir almenningi.
Nefndin ræddi einnig þann kostnað sem úrræðið getur haft í för með sér fyrir ríkissjóð og fékk kostnaðarumsögn frá fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytis sem unnin hafði verið fyrir dóms- og kirkjumálaráðuneytið þegar fyrirhugað var að flytja málið sem stjórnarfrumvarp. Kostnaðarumsögnin er birt sem fylgiskjal með álitinu. Nefndin tekur sérstaklega fram að í kostnaðarumsögninni er miðað við að kostnaður verði um 250 þús. kr. við hvert mál en nefndin lagði í frumvarpinu til að hámarksþóknun til umsjónarmanns við hvert mál yrði 200 þús. kr. og má því ætla að kostnaðurinn við hundrað mál verði um 20 millj. kr. og þúsund mál 200 millj. kr. Erfitt er að spá fyrir um hversu margir munu nýta sér úrræðið. Margt bendir til að umtalsverður fjöldi verði til þess, en einnig kann vel að vera að tilkoma þessa úrræðis greiði fyrir frjálsum samningum skuldara við kröfuhafa utan formlegrar greiðsluaðlögunarmeðferðar og þannig muni ekki jafnmargir nýta sér úrræðið og ella hefði orðið.
Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
Við 13. gr. Í stað orðanna „1. júlí 2009“ komi: 15. maí 2009.
Árni Þór Sigurðsson, Siv Friðleifsdóttir og Jón Magnússon voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 6. apríl 2009.
Árni Páll Árnason,
form., frsm.
Álfheiður Ingadóttir.
Birgir Ármannsson.
Kristrún Heimisdóttir.
Ólöf Nordal.
Sigurður Kári Kristjánsson.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um tímabundna greiðsluaðlögun
fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði.