Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 70. máls.

Þskj. 70  —  70. mál.



Frumvarp til laga

um breytingu á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög
(réttindi hluthafa).

(Lagt fyrir Alþingi á 138. löggjafarþingi 2009–2010.)




I. KAFLI

Lög um hlutafélög, nr. 2/1995, með síðari breytingum.


1. gr.

    Í stað orðanna „skriflegt og dagsett umboð“ í 2. mgr. 81. gr. laganna kemur: skriflegt eða rafrænt umboð og skal það dagsett.

2. gr.

    Í stað orðanna „gerir skriflega kröfu“ í 86. gr. laganna kemur: gerir skriflega eða rafræna kröfu.

3. gr.

    Á eftir 88. gr. laganna koma fimm nýjar greinar, 88. gr. a – 88. gr. e, svohljóðandi:
    
    a. (88. gr. a.)
    Í félögum sem hafa fjármálagerninga sína tekna til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði skal boða til hluthafafundar minnst þremur vikum fyrir fund.
    Hafi félag sem hefur fjármálagerninga sína tekna til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði ákveðið að allir hluthafar geti greitt atkvæði á hluthafafundum rafrænt, sbr. 80. gr. a, getur hluthafafundur ákveðið að boða skuli til hluthafafundar, þó ekki aðalfundar, minnst tveimur vikum fyrir fund, enda sé hann boðaður almennt á Evrópska efnahagssvæðinu eða tilkynningar þar að lútandi sendar skráðum hluthöfum á grundvelli hlutaskrár. Ákvörðun skal tekin með þeim meiri hluta sem þarf til að breyta félagssamþykktum og skal hún ekki gilda lengur en til næsta aðalfundar.
    Ekki þarf að fara eftir ákvæðum um lágmarksfrest í 1. og 2. mgr. ef boðað er til eins eða fleiri framhaldshluthafafunda í þargreindum félögum vegna skorts á ályktunarhæfi á fundinum sem fyrst var boðað til. Slíkt er þó háð því að fyrsti fundurinn hafi verið boðaður lögum samkvæmt og ekkert nýtt atriði hafi verið sett á dagskrá. Þurfa a.m.k. tíu dagar að líða milli síðasta fundarboðs og dagsetningar hluthafafundar.

    b. (88. gr. b.)
    Auk hugsanlegra frekari krafna skráningarríkis félags sem hefur fjármálagerninga sína tekna til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði um tilkynningu á fundarboði eða birtingu þess skal félag gefa út fundarboð skv. 88. gr. a með þeim hætti að tryggður sé skjótur aðgangur að því á jafnréttisgrundvelli. Skylt er að nota trausta miðla er tryggja virka útbreiðslu upplýsinga til almennings á Evrópska efnahagssvæðinu. Ekki má kveða á um að einungis megi nota miðla sem starfræktir eru í einu ríki.
    Ekki er skylt að beita 1. mgr. varðandi notkun miðils um þargreint félag sem hefur nöfn og heimilisföng hluthafa skráð í hlutaskrá, enda sé því skylt að senda hverjum skráðum hluthafa fundarboð.
    Hvort heldur fylgt er 1. eða 2. mgr. skal ekki innheimta kostnað sérstaklega fyrir útgáfu fundarboðs.

    c. (88. gr. c.)
    Í fundarboði skv. 88. gr. a í félagi sem hefur fjármálagerninga sína tekna til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði skal a.m.k. greina:
     1.      Fundarstað, sbr. 83. gr., fundartíma, sbr. 1. mgr. 84. gr. og 85. gr., og drög að dagskrá, sbr. 84. gr. og 3. mgr. 88. gr.
     2.      Skýrar og nákvæmar reglur um þátttöku og atkvæðagreiðslu á hluthafafundi. M.a. skal upplýsa um:
              a.      Rétt hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar, sbr. 86. og 89. gr., og leggja fram ályktunartillögur sé slíkt unnt eftir útgáfu fundarboðs, sbr. 88. gr., svo og spyrja spurninga, sbr. 5. mgr. 80. gr. a, auk frests til að nýta þennan rétt. Í fundarboði nægir að greina einungis frá fresti ef þar er vitnað í nánari upplýsingar um réttinn á vef félags.
              b.      Reglur um atkvæðagreiðslu fyrir atbeina umboðsmanns, eftir atvikum eyðublöð vegna slíkrar atkvæðagreiðslu og á hvern hátt félag sé reiðubúið að samþykkja rafrænar tilkynningar um skipun umboðsmanns.
              c.      Reglur um skriflega eða rafræna atkvæðagreiðslu eftir því sem við á, sbr. 80. gr. a og 82. gr.
     3.      Hvar og hvernig nálgast megi óstyttan texta skv. 3. og 4. tölul. 1. mgr. 88. gr. d.
     4.      Veffang þar sem finna má upplýsingar skv. 88. gr. d.

    d. (88. gr. d.)
    Félag sem hefur fjármálagerninga sína tekna til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði skal samfellt í 21 dag fyrir hluthafafund og auk þess fundardaginn veita hluthöfum sínum a.m.k. upplýsingar um eftirfarandi á vef félagsins:
     1.      Fundarboð skv. 88. gr. a.
     2.      Heildarfjölda hluta og atkvæða á fundarboðsdegi, sundurliðað eftir flokkum ef við á.
     3.      Skjöl sem lögð verða fyrir hluthafafund.
     4.      Ályktunartillögu eða eftir atvikum athugasemdir frá þar til bærri stofnun í félaginu að lögum varðandi hvert atriði í drögum að dagskrá hluthafafundar. Einnig skal bæta ályktunartillögum hluthafa við á vef félagsins eins fljótt og auðið er eftir móttöku þeirra.
     5.      Eftir atvikum eyðublöð sem umboðsmaður skal nota við atkvæðagreiðslu eða nota á við skriflega atkvæðagreiðslu nema þau séu send hverjum hluthafa.
    Þar sem ekki er af tæknilegum ástæðum unnt að setja eyðublöð skv. 5. tölul. 1. mgr. á vef félags skv. 1. mgr. skal það greina frá því á vef sínum hvernig nálgast megi eyðublöðin í pappírsformi. Í þeim tilvikum skal félagið senda eyðublöðin í pósti hverjum þeim hluthafa er þess óskar, viðkomandi að kostnaðarlausu.
    Sé fundarboð vegna hluthafafundar í félagi skv. 1. mgr. gefið út síðar en þremur vikum fyrir fund, sbr. 88. gr. a, skal stytta frest sem því nemur.
    Innan fimmtán daga frá hluthafafundi í félagi skv. 1. mgr. skal birta úrslit kosninga á fundinum á vef félagsins nema það hafi ákveðið að veita ítarlegri upplýsingar um atkvæðagreiðslur.

    e. (88. gr. e.)
    Fjármálaeftirlitið getur undanþegið rekstrarfélög verðbréfasjóða og fjárfestingarsjóða ákvæðum 88. gr. a – 88. gr. d.

II. KAFLI

Lög um einkahlutafélög, nr. 138/1994, með síðari breytingum.

4. gr.

    Í stað orðanna „skriflegt og dagsett umboð“ í 2. mgr. 56. gr. laganna kemur: skriflegt eða rafrænt umboð og skal það dagsett.

5. gr.

    Í stað orðanna „gerir skriflega kröfu“ í 61. gr. laganna kemur: gerir skriflega eða rafræna kröfu.

III. KAFLI

Gildistaka o.fl.

6. gr.

    Með lögum þessum er innleidd tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2007/36/EB frá 11. júlí 2007 um nýtingu tiltekinna réttinda hluthafa í skráðum félögum.

7. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Frumvarpið, sem samið er í viðskiptaráðuneytinu, felur í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2007/36/EB frá 11. júlí 2007 um nýtingu tiltekinna réttinda hluthafa í skráðum félögum (e. Directive 2007/36/EC of the European Parliament and of the Council of 11 July 2007 on the exercise of certain rights of shareholders in listed companies). Tilskipunin er hluti EES-samningsins, tekin upp í hann með ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar nr. 59/2008 frá 25. apríl 2008 um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn (EES-viðbætir við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, 15. árgangur, hefti 52 (21.8.2008), bls. 31).
    Í tilskipuninni eru settar vissar ESB-reglur (EES-reglur) um að auka réttindi og áhrif hluthafa í félögum sem hafa fjármálagerninga sína tekna til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði (stundum nefnd markaðsskráð félög eða skráð félög þótt ekki sé um skráningu félaganna sem slíkra að ræða á markaðinum og þótt félög séu almennt skráð í félagaskrám, einkum hlutafélagaskrá). Undanskilja má verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Leitast er við að skapa jafnræði með hluthöfum, einkum innlendum og erlendum, varðandi þátttöku í hluthafafundum og atkvæðagreiðslu þar. Kveðið er í því skyni á um nægilega upplýsingagjöf tímanlega (innan tiltekins frests) fyrir slíka fundi. Aðalreglan varðandi fundarboð er 21 dagur lágmark en lágmarksfrestur samkvæmt lögum um hlutafélög er nú ein vika (hámark fjórar vikur).
    Frumvarpinu er ætlað að ná til hlutafélaga, sem hafa fjármálagerninga sína tekna til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði, sem eru mjög fá hér á landi, sbr. athugasemdir við e-lið 3. gr. Reglan um lágmarksfrest til boðunar hluthafafunda er helsta breytingin frá núgildandi lögum samkvæmt frumvarpinu. Ákvæði tilskipunarinnar verða almennt ekki látin ná til annarra hlutafélaga eða einkahlutafélaga enda geyma þau um sumt íþyngjandi ákvæði. Kveðið er á um hvaða ákvæði skuli vera í fundarboði um málsmeðferð o.fl., rétt til að koma með tillögur um dagskrármál og ályktunartillögur, skilyrði fyrir þátttöku í hluthafafundi og atkvæðagreiðslu þar, þátttöku í hluthafafundi með rafrænum hætti, rétt til að leggja þar fram fyrirspurnir, atkvæðagreiðslu fyrir milligöngu umboðsaðila, skipun umboðsaðila og tilkynningu á honum til félags, bréflega atkvæðagreiðslu, afnám hindrana í vegi skilvirks atkvæðisréttar og kynningu á vef félagsins fyrir og eftir hluthafafund, m.a. um skjöl og tillögur fyrir fundinn, og úrslit atkvæðagreiðslu eftir fundinn.
    Þess skal getið að með lögum nr. 89/2006, um breytingu á lögum nr. 2/1995, um hlutafélög, sem rekja má til starfa viðskiptalífsnefndar, voru sett viss ákvæði sem eru í tilskipuninni nú. Þannig eru nú þegar í lögum ýmis ákvæði um rafræna hluthafafundi. Ýmsar breytingar þarf þó að gera á lögum um hlutafélög vegna tilskipunarinnar. Svipuð ákvæði voru þá sett um einkahlutafélög, þ.e. með lögum nr. 93/2006, um breytingu á lögum nr. 138/1994, um einkahlutafélög, með síðari breytingum. Lagðar eru til lítils háttar breytingar á lögunum um einkahlutafélög.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Í 2. mgr. 81. gr. laga um hlutafélög er m.a. tekið fram að umboðsmaður skuli leggja fram skriflegt umboð. Með hliðsjón af 1. mgr. 11. gr. tilskipunar 2007/36/EB er lagt til að bætt verði við að umboð megi vera rafrænt. Þessi breyting snertir ekki aðeins hlutafélög, sem hafa fjármálagerninga sína tekna til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði, heldur hlutafélög almennt. Samsvarandi breyting er lögð til á lögum um einkahlutafélög, sbr. 5. gr. frumvarpsins.

Um 2. gr.


    Í 86. gr. laga um hlutafélög er fjallað um rétt hluthafa til að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á hluthafafundi ef hann gerir skriflega kröfu um það til félagsstjórnar með það miklum fyrirvara að unnt sé að taka málið á dagskrá fundarins. Lagt er til í greininni að í stað orðanna „gerir skriflega kröfu“ komi orðin „gerir skriflega eða rafræna kröfu“, sbr. 3. undirgr. 1. mgr. 6. gr. tilskipunar 2007/36/EB. Gert er ráð fyrir að þessi breyting snerti ekki aðeins hlutafélög sem hafa fjármálagerninga sína tekna til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði, heldur hlutafélög almennt. Samsvarandi breyting er lögð til á lögum um einkahlutafélög, sbr. 6. gr. frumvarpsins.

Um 3. gr.


    Í greininni er gert ráð fyrir því að á eftir 88. gr. laga um hlutafélög, sem fjallar um boðun til hluthafafunda, komi fimm nýjar greinar, 88. gr. a – 88. gr. e. Er aðallega um að ræða innleiðingu á 5. gr. tilskipunar 2007/36/EB. Breytingar samkvæmt þessari grein frumvarpsins snerta aðeins hlutafélög sem hafa fjármálagerninga sína tekna til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði, en ekki hlutafélög almennt.
    Aðalbreytingin felst í 88. gr. a þar sem lágmarksfrestur til að boða til hluthafafunda er lengdur úr einni viku í þrjár vikur að aðalreglu til. Undantekningar felast í því að unnt er að boða til rafrænna hluthafafunda með tveggja vikna fyrirvara minnst og til framhaldshluthafafunda með tíu daga fyrirvara. Í 88. gr. b er fjallað um birtingu fundarboðs eða sendingu tilkynninga á Evrópska efnahagssvæðinu. Í 88. gr. c kemur fram hvað skuli greina í fundarboði. Í 88. gr. d er kveðið á um hvaða upplýsingar eigi að veita á vef félags fyrir og eftir hluthafafund. Í 88. gr. e er heimild til handa Fjármálaeftirlitinu að undanþiggja rekstrarfélög verðbréfasjóða og fjárfestingarsjóða ákvæðum 88. gr. a – 88. gr. d.
     Um a-lið (88. gr. a).
    Í 1. mgr. 88. gr. a, sem byggð er á 1. undirgr. 1. mgr. 5. gr. tilskipunar 2007/36/EB, er kveðið á um að í hlutafélögum sem hafa fjármálagerninga sína tekna til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði skuli lágmarksfrestur til boðunar hluthafafundar vera minnst þrjár vikur.
    Samkvæmt sömu ákvæðum tilskipunarinnar má þó undanskilja félög sem hafa fjármálagerninga sína tekna til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði frá þessum fresti ef um yfirtöku er að ræða. Ekki hafa þó verið sett í íslensk lög sérákvæði um yfirtöku að þessu leyti þannig að almenn ákvæði laga um hlutafélög gilda þar, þ.e. þriggja vikna fresturinn.
    Í 2. mgr. 88. gr. a, sem byggð er á 2. undirgr. 1. mgr. 5. gr. tilskipunarinnar, er gert ráð fyrir undantekningu frá þriggja vikna lágmarksfresti til boðunar hluthafafundar. Má samkvæmt ákvæðinu boða til rafræns hluthafafundar, þó ekki aðalfundar, með minnst tveggja vikna fyrirvara enda sé hann boðaður almennt á Evrópska efnahagssvæðinu eða tilkynningar þar að lútandi á grundvelli hlutaskrár í félaginu sendar skráðum hluthöfum.
    Ákvæðum 1. og 2. mgr. er ætlað að gefa hluthöfum, einkum erlendum hluthöfum, færi á að gæta betur hagsmuna sinna og skapa þeim betri möguleika til að taka þátt í hluthafafundi og greiða þar atkvæði.
    Í 3. mgr. 88. gr. a, sem byggð er á 3. undirgr. 1. mgr. 5. gr. tilskipunarinnar, er önnur undantekning frá aðalreglunni um þriggja vikna lágmarksfrest við boðun hluthafafunda í félögum sem hafa fjármálagerninga sína tekna til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði. Er í málsgreininni kveðið á um að ekki þurfi að fara eftir ákvæðum 1. og 2. mgr. um þriggja og tveggja vikna lágmarksfrest ef um boðun framhaldshluthafafunda er að ræða. Þó skal lágmarksfrestur ekki vera styttri en tíu dagar.
     Um b-lið (88. gr. b).
    Ákvæði 1. mgr. 88. gr. b byggjast á 1. undirgr. 2. mgr. 5. gr. tilskipunar 2007/36/EB. Í málsgreininni er fjallað um tilkynningu á fundarboði eða birtingu þess af hálfu félaga sem hafa fjármálagerninga sína tekna til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði, þannig að tryggður sé skjótur aðgangur að fundarboðinu á jafnréttisgrundvelli. Er félaginu skylt að nota trausta miðla til að tryggja virka útbreiðslu upplýsinga til almennings á Evrópska efnahagssvæðinu. Ekki má kveða á um að einungis megi nota miðla sem starfræktir eru í einu ríki þar eð það væri ekki í samræmi við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Gæta verður þessa m.a. við gerð samþykkta.
    Í 2. mgr., sem innleiðir 2. undirgr. 2. mgr. 5. gr. tilskipunarinnar, er gert ráð fyrir undanþágu frá 1. mgr. varðandi miðlun upplýsinga um fund enda sé viðkomandi félagi skylt að senda hverjum skráðum hluthafa fundarboð.
    Í 3. mgr., sem innleiðir 3. undirgr. 2. mgr. 5. gr. tilskipunarinnar, segir að ekki skuli innheimta kostnað sérstaklega fyrir útgáfu fundarboðs skv. 1.–2. mgr. Greiðir slíkt fyrir dreifingu upplýsinga um fundinn.
     Um c-lið (88. gr. c).
    Í 88. gr. c, sem byggð er á 3. mgr. 5. gr. tilskipunar 2007/36/EB, er kveðið á um það hvað skrá skuli í fundarboð vegna hluthafafundar félags sem hefur fjármálagerninga sína tekna til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði.
    Í 1. tölul. skal greina frá fundarstað, fundartíma og drögum að dagskrá.
    Skv. 2. tölul. skal greina frá reglum um þátttöku í hluthafafundi og atkvæðagreiðslu þar, m.a. um rétt hluthafa til að setja mál á dagskrá fundarins, leggja fram ályktunartillögur og spyrja spurninga. Þá er þar vikið að reglum um atkvæðagreiðslu fyrir atbeina umboðsmanns.
Varðandi a-lið 2. tölul. má geta þess að í lögum um hlutafélög eru nú almenn ákvæði um upplýsingagjöf á hluthafafundum, m.a. á grundvelli spurninga í opinberum hlutafélögum (91. gr.), skriflegar fyrirspurnir í opinberum hlutafélögum (4. mgr. 80. gr.) og rafrænar fyrirspurnir (5. mgr. 80. gr. a). Varðandi b-lið 2. tölul. má benda á að í 81. gr. laganna um hlutafélög eru almenn ákvæði um umboðsmenn hluthafa. sbr. 1. gr. frumvarpsins um skriflegt og rafrænt umboð.
    Í 3. tölul. segir að greina skuli frá því hvar og hvernig nálgast megi óstyttan texta skjala, ályktunartillagna og athugasemda við drög að einstökum dagskrárliðum.
    Skv. 4. tölul. skal greina frá veffangi þar sem finna má upplýsingar fyrir og eftir hluthafafund í félaginu.
    Í 88. gr. c er vísað í þær greinar laga um hlutafélög sem geyma ákvæði varðandi efni greinarinnar.
     Um d-lið (88. gr. d).
    Í 88. gr. d, sem byggist aðallega á 5. gr. tilskipunar 2007/36/EB, er greint frá þeim upplýsingum sem skylt er að veita upplýsingar um á vef félags sem hefur fjármálagerninga sína tekna til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði, fyrir hluthafafund og jafnframt eftir hann.
    Í 1. mgr., sem byggist á 1. undirgr. 4. mgr. 5. gr. tilskipunarinnar, er upptalning á því sem skylt er að birta á vef félagsins, þ.e. fundarboð, heildarfjölda hluthafa og atkvæða, skjöl, ályktunartillögur eða athugasemdir við drög að einstökum dagskrárliðum og sérstök eyðublöð.
    Í 2. mgr., sem byggist á 2. undirgr. 4. mgr. 5. gr. tilskipunarinnar, er fjallað um eyðublöð í pappírsformi ef ekki er unnt af tæknilegum ástæðum að setja sérstök eyðublöð á vef félagsins.
    Í 3. mgr., sem byggist á 3. undirgr. 4. mgr. 5. gr. tilskipunarinnar, er fjallað um styttingu frests skv. 88. gr. a (tvær vikur eða tíu dagar í stað þriggja vikna sem er aðalreglan).
    Í 4. mgr., sem byggð er á 2. mgr. 14. gr. tilskipunarinnar, er kveðið á um að birta skuli úrslit kosninga á hluthafafundi á vef félagsins innan fimmtán daga eftir fundinn nema ákveðið sé af hálfu félagsins að veita ítarlegri upplýsingar um atkvæðagreiðslur. Eigi er skylt að upplýsa hvernig tilteknir hluthafar greiddu atkvæði.
     Um e-lið (88. gr. e).
    Á grundvelli 3. mgr. 1. gr. tilskipunar 2007/36/EB er Fjármálaeftirlitinu veitt heimild til þess, væntanlega með setningu reglna, að undanþiggja rekstrarfélög verðbréfasjóða og fjárfestingarsjóða, sem kynnu að hafa fjármálagerninga sína tekna til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði, ákvæðum 88. gr. a – 88. gr. d.
    Hinn 19. júní 2009 voru tólf hlutafélög skráð á aðallista í Kauphöll Íslands en þrjú á Markaðstorgi fjármálagerninga (MTF). Ekkert rekstrarfélag verðbréfasjóðs eða fjárfestingarsjóðs var skráð. Einkahlutafélög og samvinnufélög eru ekki skráð. Undantekningarákvæði greinarinnar um rekstrarfélög verðbréfasjóða og fjárfestingarsjóða, sem hér er nýtt ef Fjármálaeftirlitið telur rétt, byggist á undanþáguheimild í 3. mgr. 1. gr. tilskipunarinnar.

Um 4. og 5. gr.


    Hér er að finna sams konar ákvæði um einkahlutafélög og í 1. og 2. gr. frumvarpsins viðvíkjandi hlutafélögum.

Um 6. gr.


    Hér er gerð grein fyrir þeirri EB-tilskipun (EES-tilskipun) sem ætlunin er að innleiða með frumvarpi þessu en hún geymir ákvæði um réttindi hluthafa í félögum sem hafa fjármálagerninga sína tekna til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði.

Um 7. gr.


    Greinin þarfnast ekki skýringa.



Fylgiskjal I.


TILSKIPUN EVRÓPUÞINGSINS OG RÁÐSINS 2007/36/EB
frá 11. júlí 2007
um nýtingu tiltekinna réttinda hluthafa í skráðum félögum


EVRÓPUÞINGIÐ OG RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HAFA,
með hliðsjón af stofnsáttmála Evrópubandalagsins, einkum 44. gr. og 95. gr.,
með hliðsjón af tillögu framkvæmdastjórnarinnar,
með hliðsjón af áliti efnahags- og félagsmálanefndar Evrópubandalaganna ( 1 ) ,
í samræmi við málsmeðferðina sem mælt er fyrir um í 251. gr. sáttmálans ( 2 ) ,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1)    Í orðsendingu sinni til ráðsins og Evrópuþingsins frá 21. maí 2003, sem ber yfirskriftina „Að færa félagarétt til nútímahorfs og bæta stjórnarhætti í fyrirtækjum í Evrópusambandinu – Áætlun um þróun“, benti framkvæmdastjórnin á að rétt væri að gera ráðstafanir um ný sérsniðin framtaksverkefni til að auka réttindi hluthafa í skráðum félögum og að brýn þörf væri á að leysa vandamál varðandi atkvæðagreiðslu yfir landamæri.
2)    Í ályktun sinni frá 21. apríl 2004 ( 3 ), lýsti Evrópuþingið yfir stuðningi sínum við fyrirætlun framkvæmdastjórnarinnar um að efla réttindi hluthafa, einkum með því að útvíkka reglur um gagnsæi, atkvæðisrétt með umboði, möguleikann á að taka þátt í aðalfundum með rafrænum hætti og tryggja að unnt sé að nýta atkvæðisrétt yfir landamæri.
3)    Handhöfum hlutabréfa með atkvæðisrétti skal heimilt að nýta sér þessi réttindi því þau eru innifalin í verðinu sem greiða verður við kaup á bréfunum. Enn fremur er skilvirkt eftirlit hluthafa forsenda fyrir góðum stjórnarháttum fyrirtækja og því ber að greiða fyrir því og hvetja til þess. Til að svo megi verða er því er nauðsynlegt að samþykkja ráðstafanir til þess að samræma lög aðildarríkjanna. Hindranir, sem koma í veg fyrir að hluthafar greiði atkvæði, s.s. þegar nýting atkvæðisréttar fellur undir kvöð um bann við viðskiptum með hlutabréf í tiltekinn tíma fyrir aðalfund, skal afnema. Þessi tilskipun hefur þó ekki áhrif á gildandi löggjöf Bandalagsins um hlutdeildarskírteini sem gefin eru út af fyrirtækjum um sameiginlega fjárfestingu eða um hlutdeildarskírteini sem eru keypt eða þeim ráðstafað í slíkum fyrirtækjum.
4)    Núverandi löggjöf Bandalagsins er ekki fullnægjandi til að ná þessu markmiði. Í tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/34/EB frá 28. maí 2001 um opinbera skráningu verðbréfa á verðbréfaþingi og upplýsingar sem birtar skulu um slík verðbréf ( 4 ), er aðallega fjallað um þær upplýsingar sem útgefendur verða að veita markaðinum en ekki um það hvernig staðið skuli að sjálfri atkvæðagreiðslu hluthafa. Enn fremur er með tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2004/ 109/EB frá 15. desember 2004 um samhæfingu krafna um gagnsæi í tengslum við upplýsingar um útgefendur verðbréfa sem eru skráð á skipulegan markað ( 5 ), lögð sú kvöð á útgefendur að tilteknar upplýsingar og skjöl, sem skipta máli, liggi frammi á aðalfundi en slíkar upplýsingar og skjöl skulu vera tiltæk í heimaríki útgefandans. Því ber að fastsetja lágmarkskröfur í því skyni að vernda fjárfesta og stuðla að því að hluthafar geti nýtt sér réttindin sem fylgja hlutabréfum með atkvæðisrétti á greiðan og skilvirkan hátt. Hvað önnur réttindi en atkvæðisrétt varðar er aðildarríkjunum heimilt að láta beitingu þessara lágmarksstaðla einnig taka til hlutabréfa án atkvæðisréttar ef slíkar kröfur gilda ekki þegar um þau.
5)    Umtalsverður hluti hlutabréfa í skráðum félögum er í eigu hluthafa sem ekki eru með fasta búsetu í því aðildarríki þar sem félagið hefur skráða skrifstofu sína. Hluthafar sem eru með fasta búsetu erlendis skulu geta nýtt sér réttindi sín í tengslum við aðalfund jafn auðveldlega og hluthafar sem eru með fasta búsetu í aðildarríkinu þar sem félagið hefur skráða skrifstofu. Til þess þarf að afnema núverandi hindranir á aðgangi þeirra hluthafa, sem hafa fasta búsetu erlendis, að upplýsingum sem skipta máli fyrir aðalfundinn og nýtingu atkvæðisréttar án þess að þeir séu sjálfir viðstaddir aðalfundinn. Þeir hluthafar með fasta búsetu, sem eru ekki eða geta ekki verið viðstaddir aðalfund, skulu einnig njóta góðs af afnámi þessara hindrana.
6)    Hluthafar skulu geta greitt atkvæði á upplýstan hátt á eða fyrir aðalfund óháð því hvar þeir hafa fasta búsetu. Allir hluthafar skulu hafa nægilegan tíma til að skoða þau gögn sem á að leggja fram á aðalfundi og ákveða hvernig þeir vilja nýta atkvæðisrétt sinn. Í því skyni skal tilkynna aðalfund með nægum fyrirvara og hluthöfum látnar í té allar þær upplýsingar sem á að leggja fram á aðalfundinum. Nýta skal þá möguleika sem nútímatækni býður upp á svo að hægt sé að nálgast upplýsingar þegar í stað. Í þessari tilskipun er gert ráð fyrir að öll skráð félög hafi þegar vefsetur.
7)    Meginreglan skal vera sú að hluthöfum gefist kostur á að setja mál á dagskrá aðalfundar og leggja fram drög að ályktunum fyrir dagskrárliði. Með fyrirvara um mismunandi tímaramma og aðferðir sem nú er stuðst við í Bandalaginu skal nýting þessara réttinda falla undir tvær grundvallarreglur, þ.e. að engin viðmiðunarmörk, sem krafa er gerð um vegna nýtingar þessara réttinda, skuli vera meira en 5% af hlutafé félagsins og að allir hluthafar skuli ávallt fá lokagerð dagskrárinnar með nægum fyrirvara til þess að undirbúa sig fyrir umræður og atkvæðagreiðslu fyrir hvern dagskrárlið.
8)    Meginreglan skal vera sú að hverjum hluthafa gefist kostur á að leggja fram spurningar sem varða liði á dagskrá aðalfundar og fá svör við þeim en aðildarríkjunum er látið eftir að ákvarða reglur um hvernig og hvenær spurningar skulu lagðar fram og þeim svarað.
9)    Engar lagalegar hindranir skulu koma í veg fyrir að félög geti boðið hluthöfum sínum að taka þátt í aðalfundi með rafrænum hætti. Atkvæðagreiðsla án þess að viðkomandi sé sjálfur á aðalfundi, hvort sem það er bréflega eða með rafrænum hætti, skal ekki vera háð öðrum takmörkunum en þeim sem nauðsynlegar eru til að sannprófa auðkenni og öryggi rafrænna samskipta. Þetta skal þó ekki koma í veg fyrir að aðildarríkin samþykki reglur sem miða að því að tryggja að úrslit atkvæðagreiðslu endurspegli fyrirætlanir hluthafa undir öllum kringumstæðum, þ.m.t. reglur um aðstæður þar sem nýjar kringumstæður myndast eða koma í ljós eftir að hluthafi hefur greitt atkvæði bréflega eða með rafrænum hætti.
10)    Góðir stjórnarhættir fyrirtækja krefjast þess að atkvæðagreiðsla með umboði (e. proxy) gangi vel og greiðlega fyrir sig. Því ber að afnema núverandi takmarkanir og hindranir sem gera atkvæðagreiðslu með umboði flókna og kostnaðarsama. En góðir stjórnarhættir fyrirtækja krefjast einnig fullnægjandi verndarráðstafana gegn hugsanlegri misnotkun á atkvæðagreiðslu með umboði. Umboðshafa skal því skylt að fylgja öllum fyrirmælum sem hann kann að hafa fengið frá hluthafa og aðildarríkjum skal gert kleift að gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að umboðshafi gæti ekki hagsmuna annarra en hluthafa, óháð því hvaða ástæður hafa leitt til hagsmunaárekstrana. Ráðstafanir gegn hugsanlegri misnotkun geta m.a. falist í fyrirkomulagi sem aðildarríkin kunna að koma á fót til þess að hafa eftirlit með starfsemi þeirra einstaklinga sem á virkan hátt safna umboðum eða sem í reynd hafa safnað meira en tilteknum fjölda umboða, einkum til að tryggja fullnægjandi áreiðanleika og gegnsæi. Hluthafar skulu hafa ótakmarkaðan rétt samkvæmt þessari tilskipun til þess að tilnefna slíka einstaklinga sem umboðshafa til þess að sækja aðalfund og greiða atkvæði í þeirra nafni. Þessi tilskipun hefur þó á engan hátt áhrif á reglur eða viðurlög sem aðildarríkin kunna að setja vegna slíkra einstaklinga þar sem atkvæði hefur verið greitt með sviksamlegri notkun á þeim umboðum sem hefur verið safnað. Enn fremur skuldbindur þessi tilskipun ekki á nokkurn hátt félög til að sannreyna að umboðshafar greiði atkvæði í samræmi við fyrirmæli hluthafa, sem hafa tilnefnt þá, um atkvæðagreiðslu.
11)    Með þátttöku fjármálamilliliða er árangur af atkvæðagreiðslu samkvæmt fyrirmælum að miklu leyti kominn undir því hve skilvirk keðja milliliðanna er þar eð fjárfestar geta oft ekki nýtt sér atkvæðisréttinn, sem fylgir hlutabréfum þeirra, án samstarfs við alla milliliði í keðjunni sem hugsanlega hafa ekki efnahagslegra hagsmuna að gæta í hlutabréfunum. Til þess að auðvelda fjárfesti að nýta sér atkvæðisrétt sinn yfir landamæri er því mikilvægt að milliliðir liðki fyrir nýtingu atkvæðisréttar. Framkvæmdastjórnin skal taka þetta til frekari meðferðar með tilmælum í því skyni að tryggja að fjárfestar hafi aðgang að skilvirkri kosningaþjónustu og að atkvæðisréttur sé nýttur í samræmi við fyrirmæli þessara fjárfesta.
12)    Ef tímasetning á upplýsingum til stjórnar, framkvæmdastjórnar eða eftirlitsstjórnar sem og til almennings um þau atkvæði, sem greidd eru fyrir aðalfund með rafrænum hætti eða bréflega, skiptir miklu máli vegna stjórnarhátta fyrirtækja, geta aðildarríkin fastsett hana.
13)    Ganga skal frá úrslitum atkvæðagreiðslu með aðferðum sem endurspegla áform hluthafa með atkvæðagreiðslunni og skulu þau birt eftir aðalfund a.m.k. á vefsetri félagsins.
14)    Þar eð aðildarríkin geta ekki fyllilega náð markmiðum þessarar tilskipunar, þ.e. að gera hluthöfum kleift að nýta réttindi sín með skilvirkum hætti alls staðar í Bandalaginu, á grundvelli núverandi löggjafar Bandalagsins, og þeim verður betur náð á vettvangi Bandalagsins, vegna þess hve aðgerðirnar eru umfangsmiklar og hafa víðtæk áhrif, er Bandalaginu heimilt að samþykkja ráðstafanir í samræmi við dreifræðisregluna eins og kveðið er á um í 5. gr. sáttmálans. Í samræmi við meðalhófsregluna, eins og hún er sett fram í þeirri grein, er ekki gengið lengra en nauðsyn krefur í þessari tilskipun til að ná þessu markmiði.
15)    Í samræmi við 34. mgr. samstarfssamningsins milli stofnana um betri lagasetningu ( 6 ), eru aðildarríkin hvött til að taka saman, fyrir sig og í þágu Bandalagsins, eigin töflur sem sýna, eftir því sem við verður komið, samsvörun milli þessarar tilskipunar og ráðstafananna til að lögleiða hana og að birta þær,
SAMÞYKKT TILSKIPUN ÞESSA:

I. KAFLI
ALMENN ÁKVÆÐI
1. gr.
Efni og gildissvið

1.     Í þessari tilskipun eru fastsettar kröfur í tengslum við nýtingu tiltekinna réttinda hluthafa sem fylgja atkvæðisrétti í tengslum við aðalfund félaga sem hafa skráða skrifstofu í aðildarríki en hlutabréf þeirra eru skráð á skipulegan markað sem er staðsettur í eða starfræktur í aðildarríki.
2.     Aðildarríki sem bært er til að setja reglur um málefni sem falla undir þessa tilskipun skal vera það aðildarríki þar sem félagið hefur skráða skrifstofu og tilvísanir til „gildandi laga“ eru tilvísanir til laga þess aðildarríkis.
3.     Aðildarríkjunum er heimilt að veita eftirfarandi gerðum félaga undanþágu frá þessari tilskipun:
a)    fyrirtækjum um sameiginlega fjárfestingu í skilningi 2. mgr. 1. gr. tilskipunar ráðsins 85/611/EBE frá 20. desember 1985 um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum um fyrirtæki um sameiginlega fjárfestingu í framseljanlegum verðbréfum ( 7 ),
b)    fyrirtækjum sem einungis hafa að markmiði sameiginlega fjárfestingu fjár sem almenningur hefur lagt fram, starfa á grundvelli meginreglunnar um áhættudreifingu en sækjast ekki eftir að ná lagalegum eða stjórnunarlegum yfirráðum yfir útgefendum undirliggjandi fjárfestinga sinna, að því tilskildu að lögbær yfirvöld hafi veitt þessum fyrirtækjum um sameiginlega fjárfestingu starfsleyfi, og þau heyri undir eftirlit þeirra og að þau annist vörsluþjónustu sem er jafngild þeirri sem um getur fyrir vörslufyrirtæki í tilskipun 85/611/ EBE,
c)    samvinnufélögum.

2. gr.


Skilgreiningar


Í þessari tilskipun er merking eftirfarandi hugtaka sem hér segir:
a)    „skipulegur markaður“: markaður eins og hann er skilgreindur í 14. lið 1. mgr. 4. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2004/39/EB frá 21. apríl 2004 um markaði fyrir fjármálagerninga ( 8 ),
b)    „hluthafi“: einstaklingur eða lögaðili sem er viðurkenndur sem hluthafi samkvæmt gildandi lögum,
c)    „umboð“: heimild frá hluthafa til einstaklings eða lögaðila til þess að nýta sér einhver eða öll réttindi þessa hluthafa á aðalfundi í hans nafni.

3. gr.
Frekari ráðstafanir á landsvísu

Þessi tilskipun kemur ekki í veg fyrir að aðildarríkin geti lagt frekari skyldur á félög eða að þau geri frekari ráðstafanir til þess að auðvelda hluthöfum að nýta sér þau réttindi sem um getur í þessari tilskipun.

II. KAFLI
AÐALFUNDIR HLUTHAFA
4. gr.
Jöfn meðferð hluthafa

Félagið skal tryggja jafna meðferð allra hluthafa sem hafa sömu stöðu að því er varðar þátttöku og nýtingu atkvæðisréttar á aðalfundi.

5. gr.
Upplýsingar fyrir aðalfund

1.     Með fyrirvara um 4. mgr. 9. gr. og 4. mgr. 11. gr. í tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2004/25/EB frá 21. apríl 2004 um yfirtökutilboð ( 9 ), skulu aðildarríkin sjá til þess að félag boði til aðalfundar á einhvern þann hátt sem tilgreindur er í 2. mgr. þessarar greinar eigi síðar en á 21. degi fyrir fundardag.
Aðildarríkjunum er heimilt að kveða á um það, ef félag gefur öllum hluthöfum sínum kost á að greiða atkvæði með rafrænum hætti, að aðalfundur hluthafa geti ákveðið að félagið boði til aðalfundar, sem er ekki árlegur aðalfundur, á einhvern þann hátt sem tilgreindur er í 2. mgr. þessarar greinar eigi síðar en 14 dögum fyrir fundinn. Þessi ákvörðun skal tekin með a.m.k. tveimur þriðju hlutum þeirra atkvæða sem fylgja hlutabréfunum eða skráðu eigin fé, sem farið er með atkvæði fyrir, og skal hún eigi gilda lengur en fram að næsta árlega aðalfundi.
Aðildarríkin þurfa ekki að beita lágmarkstímanum, sem um getur í fyrstu og annarri undirgrein, fyrir aðra eða síðari boðun til aðalfundar þegar það er gert vegna þess að tilskilinn meirihluti fékkst ekki fyrir fundinn sem fyrst var boðað til, að því tilskildu að farið hafi verið að þessari grein í fyrsta fundarboðinu og að ekkert nýtt mál sé sett á dagskrá og að minnsta kosti tíu dagar líði milli lokaboðunar og dagsetningu aðalfundar.
2.     Með fyrirvara um frekari kröfur um tilkynningu eða birtingu, sem þar til bært aðildarríki mælir fyrir um, eins og skilgreint er í 2. mgr. 1. gr., skal gerð sú krafa að félagið gefi út fundarboðið, sem um getur í 1. mgr. þessarar greinar á þann hátt að tryggður sé greiður aðgangur að því án mismununar. Aðildarríkið skal krefjast þess að félagið noti miðla sem unnt er að treysta með góðu móti að dreifi upplýsingum á skilvirkan hátt til almennings í Bandalaginu. Aðildarríkið má ekki gera það að skilyrði að einungis verði notaðir miðlar sem eru reknir af aðilum með staðfestu á yfirráðasvæði þess.
Aðildarríkin þurfa ekki að beita fyrstu undirgrein gagnvart félögum sem geta greint frá nöfnum og heimilisföngum hluthafa sinna í fyrirliggjandi hluthafaskrá, að því tilskildu að félagið sé skuldbundið til þess að senda fundarboð til allra skráðra hluthafa sinna.
Í hvorugu tilvikinu er félaginu heimilt að krefja um greiðslu sérstaks kostnaðar fyrir að senda út fundarboð með tilskildum hætti.
3.     Í fundarboðinu, sem um getur í 1. mgr., skal a.m.k. vera eftirfarandi:
a)    nákvæmar upplýsingar um fundartíma og fundarstað og fyrirhuguð dagskrá aðalfundar,
b)    skýr og greinargóð lýsing á þeim reglum sem hluthafar verða að fylgja til þess að fá að taka þátt í fundinum og greiða atkvæði á aðalfundi. Þetta tekur til upplýsinga um:
    i.        réttindi hluthafa samkvæmt 6. gr., að því marki sem hægt er að nýta þessi réttindi eftir að fundarboð hefur verið sent, og samkvæmt 9. gr. svo og þá fresti sem gefnir eru til að nýta þessi réttindi. Fundarboðunin getur takmarkast við það að kveða einungis á um fresti sem veittir eru til að nýta þessi réttindi, að því tilskildu að í henni sé greint frá því að nánari upplýsingar um þessi réttindi sé að finna á vefsetri félagsins,
    ii.    tilhögun atkvæðagreiðslu með umboði, einkum um eyðublöð sem á að nota við atkvæðagreiðslu með umboði og hvernig félagið er í stakk búið til að taka á móti rafrænum tilkynningum um tilnefningu á umboðshöfum og
    iii.    ef við á, hvernig staðið skuli að bréflegri eða rafrænni atkvæðagreiðslu,
c)    ef við á, tilgreining á skráningardegi, eins og skilgreint er í 2. mgr. 7. gr., og útskýring á því að einungis þeir sem eru hluthafar á þeim degi skuli hafa rétt til þess að taka þátt í aðalfundi og greiða atkvæði,
d)    tilgreining á því hvar og hvernig hægt er að fá allan, óstyttan texta skjala og draga að ályktunum sem um getur í c- og d-lið í 4. mgr.,
e)    tilgreining á veffangi vefsetursins þar sem upplýsingarnar, sem um getur í 4. mgr., verða tiltækar.
4.     Aðildarríkin skulu sjá til þess að félagið geri hluthöfum sínum, á samfelldu tímabili sem hefst eigi síðar en á 21. degi fyrir aðalfundardag, að meðtöldum aðalfundardegi, a.m.k. eftirfarandi upplýsingar aðgengilegar á vefsetri sínu:
a)    fundarboðið, sem um getur í 1. mgr.,
b)    heildarfjölda hlutabréfa og atkvæða á þeim degi sem boðað er til fundar (þ.m.t. sérstakar heildartölur fyrir hvern flokk hlutabréfa þar sem hlutafjáreign félagsins er skipt í tvo eða fleiri flokka hlutabréfa),
c)    skjölin sem leggja á fram á aðalfundi,
d)    drög að ályktun eða, ef ekki er lagt til að samþykkja ályktun, athugasemd frá þar til bærum aðila innan félagsins, sem tilnefna skal samkvæmt gildandi lögum fyrir hvern lið á fyrirhugaðri dagskrá aðalfundar. Auk þess skal setja drög að ályktunum frá hluthöfum á vefsetrið eins fljótt og auðið er eftir að félagið hefur fengið þau,
e)    ef við á, eyðublöð sem nota á til að greiða atkvæði með umboði og til að greiða atkvæði bréflega nema þessi eyðublöð séu send beint til hvers hluthafa.
Ef ekki er unnt að sækja eyðublöðin, sem um getur í e-lið, á Netið af tæknilegum ástæðum skal félagið greina frá því á vefsetri sínu hvernig hægt er að fá eyðublöðin á pappír. Í því tilviki er félaginu skylt að póstsenda eyðublöðin endurgjaldslaust til hvers hluthafa sem þess óskar.
Ef, samkvæmt 4. mgr. 9. gr. eða 4. mgr. 11. gr. tilskipunar 2004/25/EB, eða annarri undirgrein 1. mgr. þessarar greinar, boðað er til aðalfundar eigi síðar en 21 degi fyrir fund, skal fresturinn sem tilgreindur er í þessari grein, styttur í samræmi við það.

6. gr.

Réttur til setja mál á dagskrá aðalfundar og til að leggja fram drög að ályktunum

1.     Aðildarríkin skulu sjá til þess að hluthafar, hver fyrir sig eða sameiginlega:
a)    hafi rétt til þess að setja mál á dagskrá aðalfundar, að því tilskildu að hverju slíku máli fylgi rökstuðningur eða drög að ályktun til samþykktar á aðalfundinum og
b)    hafi rétt til að leggja fram drög að ályktunum vegna mála sem eru felld eða verða felld inn í dagskrá aðalfundar.
Aðildarríkin geta kveðið á um að einungis sé unnt að nýta réttindin, sem um getur í a-lið, í tengslum við árlegan aðalfund, að því tilskildu að hluthafar, hver fyrir sig eða sameiginlega, hafi rétt til að boða til aðalfundar eða gera kröfu um að félagið boði til aðalfundar, sem er ekki árlegur aðalfundur, með dagskrá sem tekur a.m.k. til allra þeirra mála sem þessir hluthafar óska eftir að fjallað verði um.
Aðildarríkin geta kveðið á um að þessi réttindi séu nýtt skriflega (send með pósti eða rafrænt).
2.     Ef einhver þeirra réttinda sem eru tilgreind í 1. mgr. eru með fyrirvara um að viðkomandi hluthafi eða hluthafar eigi lágmarkshlut í félaginu skal þetta lágmark ekki fara yfir 5% af hlutafé.
3.     Hvert aðildarríki skal kveða á um einn frest, með tilliti til tiltekins dagafjölda fyrir aðalfund eða fundarboð, þar sem hluthöfum er heimilt að nýta sér réttinn sem um getur í a-lið 1. mgr. Á sama hátt getur hvert aðildarríki kveðið á um frest vegna nýtingar á réttinum sem um getur í b-lið 1. mgr.
4.     Aðildarríkin skulu sjá til þess, ef nýting réttarins, sem um getur í a-lið 1. mgr., hefur í för með sér breytingu á dagskrá aðalfundar sem þegar hefur verið tilkynnt hluthöfum, að félagið skuli gera endurskoðaða dagskrá tiltæka á sama hátt og fyrri dagskrá fyrir gildandi skráningardag, eins og skilgreint er í 2. mgr. 7. gr., eða ef enginn skráningardagur gildir, með nægum fyrirvara fyrir dagsetningu aðalfundar þannig að aðrir hluthafar geti tilnefnt umboðshafa, eða eftir atvikum, greitt atkvæði bréflega.

7. gr.

Kröfur vegna þátttöku og atkvæðagreiðslu á aðalfundi

1.     Aðildarríkin skulu sjá til þess:
a)    að réttindi hluthafa til að taka þátt í aðalfundi og greiða atkvæði í tengslum við hvaða hlutabréf sín sem er séu ekki með fyrirvara um kröfur um að hlutabréfum hans sé komið fyrir í vörslu, þau séu flutt til eða skráð á neinn annan einstakling eða lögaðila fyrir aðalfund og
b)    að réttindi hluthafa til að selja eða flytja á annan hátt hlutabréf sín á tímabilinu frá skráningardegi, eins og hann er skilgreindur í 2. mgr., til aðalfundar, sem þessi dagur á við um, séu ekki háð neinum takmörkunum sem gilda ekki um þau á öðrum tíma.
2.     Aðildarríkin skulu kveða á um að réttindi hluthafa til að taka þátt í aðalfundi og greiða atkvæði með tilliti til hlutabréfa sinna skuli ákvarðast með tilliti til hlutabréfanna í eigu þess hluthafa á tilteknum degi fyrir aðalfund (skráningardegi).
Aðildarríkin þurfa ekki að beita fyrstu undirgrein gagnvart þeim félögum sem geta greint frá nöfnum og heimilisföngum hluthafa sinna á grundvelli fyrirliggjandi hluthafaskrár á þeim degi er aðalfundur fer fram.
3.     Hvert aðildarríki skal tryggja að einn skráningardagur gildi um öll félög. Þó getur aðildarríki kveðið á um einn skráningardag fyrir félög sem hafa gefið út handhafahlutabréf og annan skráningardag fyrir félög sem hafa gefið út skráð hlutabréf, að því tilskildu að einn skráningardagur gildi um hvert félag sem hefur gefið út báðar gerðir hlutabréfa. Skráningardagurinn skal vera innan 30 daga tímabils fyrir aðalfundinn sem hann gildir um. Við framkvæmd á þessu ákvæði og 1. mgr. 5. gr. skal hvert aðildarríki tryggja það að minnst átta dagar líði milli síðasta heimilaðs dags fyrir boðun til aðalfundar og skráningardags. Við útreikning á fjölda daga skal ekki telja þessa tvo daga með. Við þær kringumstæður sem lýst er í þriðju undirgrein 1. mgr. 5. gr. geta aðildarríkin þó gert kröfu um að minnst sex dagar líði frá síðustu heimiluðu dagsetningu fyrir aðra aðalfundarboðun og síðari boðanir til skráningardags. Við útreikning á fjölda daga skal ekki telja þessa tvo daga með.
4.     Ekki er hægt að gera aðrar kröfur um sönnun um stöðu sem hluthafi nema þær sem nauðsynlegar eru til að ganga úr skugga um auðkenni hluthafa og aðeins að því marki sem þær eru í réttu hlutfalli við það markmið.

8. gr.
Þátttaka í aðalfundi með rafrænum hætti

1.     Aðildarríkin skulu heimila félögum að bjóða hluthöfum sínum hvers kyns leiðir til rafrænnar þátttöku í aðalfundi, einkum eina eða allar eftirfarandi leiða til þátttöku, þ.e.:
a)    rauntímaútsending frá aðalfundi,
b)    rauntímasamskipti í báðar áttir sem gera hluthöfum kleift að ávarpa aðalfund úr fjarlægð,
c)    fyrirkomulag atkvæðagreiðslu, hvort heldur er fyrir eða meðan á aðalfundi stendur, án þess að þurfa að tilnefna umboðshafa sem sækir fundinn í eigin persónu.
2.     Einungis er heimilt að binda notkun rafrænna miðla, sem gera hluthöfum kleift að taka þátt í aðalfundi, við kröfur og skilyrði, sem eru nauðsynleg til að tryggja auðkenningu hluthafa og öryggi rafrænna samskipta, og aðeins að því marki sem það er í réttu hlutfalli við þessi markmið.
Þetta er með fyrirvara um hvers kyns lagaákvæði sem aðildarríkin hafa samþykkt eða kunna að samþykkja að því er varðar ferli ákvarðanatöku innan félagsins vegna innleiðingar eða framkvæmdar á hvers kyns rafrænum þátttökuleiðum.

9. gr.
Réttur til að leggja fram spurningar

1.     Hver hluthafi skal eiga rétt á að leggja fram spurningar varðandi mál á dagskrá aðalfundar. Félagið skal svara þeim spurningum sem hluthafar beina til þess.
2.     Rétturinn til að leggja fram spurningar og skyldan til að svara þeim eru með fyrirvara um aðgerðir sem aðildarríkin kunna að grípa til eða gefa félögum kost á að gera til þess að tryggja auðkenningu á hluthöfum, gott fyrirkomulag aðalfunda og undirbúning þeirra svo og verndun trúnaðarupplýsinga og viðskiptahagsmuna félaga. Aðildarríkjunum er heimilt að leyfa félögum að veita eitt heildarsvar við spurningum varðandi sama efni.
Aðildarríkin geta kveðið á um að svar teljist hafa verið veitt ef viðkomandi upplýsingar eru aðgengilegar á vefsetri félagsins í formi spurninga og svara.

10. gr.
Atkvæðagreiðsla með umboði

1.     Hver hluthafi skal eiga rétt til þess að tilnefna hvaða einstakling eða lögaðila sem er sem umboðshafa til þess að mæta og greiða atkvæði á aðalfundi í sínu nafni. Umboðshafi skal hafa sömu réttindi til að taka til máls og leggja fram spurningar á aðalfundi og hluthafinn sem hann er í forsvari fyrir.
Að frátalinni þeirri kröfu að umboðshafi hafi gerhæfi skulu aðildarríkin afnema öll lagaákvæði sem takmarka eða heimila fyrirtækjum að takmarka möguleika einstaklinga til að vera tilnefndir sem umboðshafar.
2.     Aðildarríkjunum er heimilt að takmarka tilnefningu umboðshafa við einn fund eða þá fundi sem kunna að verða haldnir á tilteknu tímabili.
Með fyrirvara um 5. mgr. 13. gr. er aðildarríkjunum heimilt að takmarka þann fjölda einstaklinga sem hluthafar geta tilnefnt sem umboðshafa í tengslum við einn tiltekinn aðalfund. Eigi hluthafi hins vegar hlutabréf í félagi, sem eru á fleiri en einum verðbréfareikningi, kemur slík takmörkun ekki í veg fyrir að hluthafi geti tilnefnt sérstakan umboðshafa fyrir hlutabréf á hverjum verðbréfareikningi í tengslum við einn tiltekinn aðalfund. Þetta hefur ekki áhrif á ákvæði í gildandi lögum sem banna að atkvæði séu greidd með mismunandi hætti fyrir hlutabréf sem eru í eigu eins og sama hluthafa.
3.     Fyrir utan þær takmarkanir, sem skýrt eru heimilaðar í 1. og 2. mgr., skulu aðildarríkin ekki takmarka eða leyfa félögum að takmarka nýtingu á réttindum hluthafa fyrir milligöngu umboðshafa í neinum öðrum tilgangi en þeim að taka á hugsanlegum hagsmunaárekstrum milli umboðshafa og þess hluthafa sem umboðshafa er skylt að gæta hagsmuna fyrir og þá skal aðildarríki ekki gera aðrar kröfur en eftirfarandi:
a)    Aðildarríkjunum er heimilt að mæla fyrir um að umboðshafi láti í té sérstakar upplýsingar sem kunna að skipta máli til að hluthafi geti metið hugsanlega hættu á því að umboðshafi kunni að gæta annarra hagsmuna en hagsmuna hluthafans,
b)    Aðildarríkjunum er heimilt að takmarka eða útiloka að hluthafi nýti sér réttindi sín fyrir milligöngu umboðshafa án sérstakra fyrirmæla um atkvæðagreiðslu fyrir hverja ályktun sem umboðshafi á að greiða atkvæði um fyrir hönd hluthafans,
c)    Aðildarríkjunum er heimilt að takmarka eða útiloka framsal á umboði til annars aðila, en þetta á ekki að koma í veg fyrir að umboðshafi, sem er lögaðili, nýti sér þau réttindi sem honum hefur verið falið fyrir milligöngu einhvers úr félagsstjórn eða framkvæmdastjórn eða einhvers starfsmanna sinna.
Hagsmunaárekstrar í skilningi þessarar málsgreinar geta einkum orðið þegar umboðshafi:
    i.        er ráðandi hluthafi í félaginu eða er önnur eining undir yfirráðum slíks hluthafa,
    ii.    á sæti í stjórn, framkvæmdastjórn eða eftirlitsstjórn í félaginu eða er ráðandi hluthafi eða undireining eins og um getur í i. lið,
    iii.    er starfsmaður eða endurskoðandi félagsins eða fyrir ráðandi hluthafa eða undireining eins og um getur í i. lið,
    iv.    er tengdur fjölskylduböndum einstaklingi sem um getur í i. iii. lið.
4.     Umboðshafinn skal greiða atkvæði í samræmi við fyrirmælin frá hluthafanum sem tilnefnir hann.
Aðildarríkjum er heimilt að gera kröfu um að umboðshafar haldi skrá yfir fyrirmæli um atkvæðagreiðslu í tiltekinn lágmarkstíma og að þeir staðfesti, sé þess krafist, að fyrirmælunum um atkvæðagreiðslu hafa verið hlýtt.
5.     Sem umboðsaðila er aðila heimilt að fara með umboð fleiri en eins hluthafa án þess að það takmarki fjölda þeirra hluthafa sem hann er í forsvari fyrir. Ef umboðshafi fer með umboð fyrir marga hluthafa skulu gildandi lög gera honum kleift að greiða atkvæði á annan hátt fyrir tiltekinn hluthafa en hann greiðir fyrir annan hluthafa.

11. gr.
Formsatriði vegna tilnefningar á umboðshafa og tilkynningar þar að lútandi

1.     Aðildarríkin skulu heimila hluthöfum að tilnefna umboðshafa með rafrænum hætti. Auk þess skulu aðildarríkin heimila félögum að samþykkja tilkynningu um tilnefningu með rafrænum hætti og tryggja að hvert félag bjóði hluthöfum sínum a.m.k. eina skilvirka aðferð til að tilkynna með rafrænum hætti.
2.     Aðildarríkin skulu sjá til þess að ekki sé hægt að tilnefna umboðshafa, og tilkynna félaginu um tilnefningu þeirra, nema skriflega. Að undanskilinni þessari formlegu grundvallarkröfu má tilnefning umboðshafa, tilkynning um tilnefningu til félagsins og útgáfa fyrirmæla til umboðshafa um atkvæðagreiðslu, ef um þau er að ræða, aðeins vera háð þeim formkröfum, sem nauðsynlegar eru til að tryggja auðkenningu hluthafa og umboðshafa, eða til að tryggja möguleika á að sannreyna efni fyrirmæla um atkvæðagreiðslu, eftir því sem við á, og aðeins að því marki sem þær eru í réttu hlutfalli við þessi markmið.
3.     Ákvæði þessarar greinar gilda, að breyttu breytanda, um afturköllun á tilnefningu umboðshafa.

12. gr.
Bréfleg atkvæðagreiðsla

Aðildarríkin skulu heimila félögum að gefa hluthöfum sínum kost á að greiða atkvæði bréflega fyrir aðalfund. Bréfleg atkvæðagreiðsla má aðeins vera háð þeim kröfum og takmörkunum sem eru nauðsynlegar til að tryggja auðkenningu hluthafa og aðeins að því marki sem þær eru í réttu hlutfalli við það markmið.

13. gr.
Afnám tiltekinna hindrana á skilvirkri nýtingu atkvæðisréttar

1.     Þessi grein á við þegar einstaklingur eða lögaðili, sem er viðurkenndur sem hluthafi samkvæmt gildandi lögum, kemur fram í viðskiptum fyrir hönd annars einstaklings eða lögaðila (umbjóðanda).
2.     Ef í gildandi lögum eru gerðar kröfur um opinbera birtingu sem forsendu þess að hluthafi, sem um getur í 1. mgr., geti nýtt sér atkvæðisrétt sinn, skulu slíkar kröfur ekki vera umfram það að taka saman skrá sem veitir félaginu upplýsingar um auðkenni hvers umbjóðanda og fjölda þeirra atkvæða sem hafa verið greidd fyrir hans hönd.
3.     Ef í gildandi lögum eru gerðar formlegar kröfur um leyfi hluthafa, sem um getur í 1. mgr., til að nýta atkvæðisrétt, eða fyrirmæli um atkvæðagreiðslu, skulu slíkar formlegar kröfur ekki vera umfram það sem nauðsynlegt er til að tryggja auðkenningu á umbjóðandanum eða möguleikann á að sannreyna efni fyrirmæla um atkvæðagreiðslu, eftir því sem við á, og skulu þær vera í réttu hlutfalli við þau markmið.
4.     Hluthafa, sem um getur í 1. mgr., skal heimilt að greiða atkvæði sem fylgja sumum hlutabréfum öðruvísi en fyrir önnur hlutabréf.
5.     Ef gildandi lög takmarka fjölda aðila, sem hluthafa er heimilt að tilnefna sem umboðshafa, í samræmi við 2. mgr. 10. gr., skal slík takmörkun ekki koma í veg fyrir að hluthafi, sem um getur í 1. mgr. þessarar greinar, veiti hverjum umbjóðanda sínum umboð eða þeim þriðja aðila sem umbjóðandi hans tilnefnir.

14. gr.
Úrslit atkvæðagreiðslu

1.     Fyrir hverja ályktun skal félagið greina a.m.k. frá fjölda hlutabréfa, sem greitt hafa gild atkvæði, hlutfall hlutafjár sem liggur að baki þessum atkvæðum, heildarfjölda gildra atkvæða svo og fjölda atkvæða sem greidd hafa verið með og á móti hverri ályktun og, þar sem við á, fjölda þeirra sem sátu hjá.
Þó er aðildarríkjunum heimilt að kveða á um eða heimila félögum að kveða á um, fari enginn hluthafi fram á að gerð sé full grein fyrir atkvæðagreiðslu, að nægilegt sé að greina frá úrslitum atkvæðagreiðslu að því marki sem þörf er á til að tryggja að meirihluti náist fyrir hverri ályktun.
2.     Innan þess tíma sem tiltekinn er í gildandi lögum, sem skal ekki vera umfram 15 daga frá aðalfundi, skal félagið birta á vefsetri sínu úrslit atkvæðagreiðslu sem fengin eru í samræmi við 1. mgr.
3.     Þessi grein er með fyrirvara um hvers kyns lagaákvæði sem aðildarríkin hafa samþykkt eða kunna að samþykkja að því er varðar tilskilin formsatriði til þess að ályktun geti talist gild eða varðandi það að lögleg úrslit atkvæðagreiðslu kunni að verða vefengd síðar.

III. KAFLI
LOKAÁKVÆÐI
15. gr.
Lögleiðing

Aðildarríkin skulu samþykkja nauðsynleg lög og stjórnsýslufyrirmæli eigi síðar en 3. ágúst 2009 til að fara að tilskipun þessari. Þau skulu þegar í stað senda framkvæmdastjórninni texta þessara ráðstafana.
Þrátt fyrir fyrstu málsgrein skulu þau aðildarríki þar sem 1. júlí 2006 voru í gildi innlend ákvæði, sem takmarka eða banna tilnefningu umboðshafa í því tilviki sem um getur í ii. lið annarrar undirgreinar 3. mgr. 10. gr., samþykkja nauðsynleg lög og stjórnsýslufyrirmæli til að fara að 3. mgr. 10. gr. að því er varðar slíka takmörkun eða bann eigi síðar en 3. ágúst 2012.
Aðildarríkin skulu þegar í stað tilkynna framkvæmdastjórninni um fjölda þeirra daga sem tilgreindir eru í 3. mgr. 6. gr. og 3. mgr. 7. gr. og allar síðari breytingar sem framkvæmdastjórnin skal birta í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Þegar aðildarríkin samþykkja ráðstafanirnar, sem um getur í 1. mgr., skal vera í þeim tilvísun í þessa tilskipun eða þeim fylgja slík tilvísun þegar þær verða birtar opinberlega. Aðildarríkin skulu setja nánari reglur um slíka tilvísun.

16. gr.
Gildistaka

Tilskipun þessi öðlast gildi á tuttugasta degi eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.

17. gr.
Viðtakendur

Tilskipun þessari er beint til aðildarríkjanna.
Gjört í Strassborg 11. júlí 2007 .
Fyrir hönd Evrópuþingsins, Fyrir hönd ráðsins,
H.-G. PÖTTERING M. LOBO ANTUNES
forseti. forseti.




Fylgiskjal II.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:

Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um hlutafélög,
nr. 138/1994, og lögum um einkahlutafélög, nr. 138/1994,
með síðari breytingum (réttindi hluthafa).

    Frumvarpið felur í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2007/36(EB frá 11. júlí 2007 um nýtingu tiltekinna réttinda hluthafa í skráðum félögum. Felur það einkum í sér breytingar á lögum um hlutafélög hvað snertir frest til að boða til hluthafafundar, hvaða gögn skuli undirbúa fyrir fund og hvernig birta skuli upplýsingar á vef félaga eftir viðkomandi fund.
    Verði frumvarpið óbreytt að lögum verður ekki séð að það muni hafa í för með sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð.
Neðanmálsgrein: 1
(1)    Stjtíð. ESB C 318, 23.12.2006, bls. 42.
Neðanmálsgrein: 2
(2)    Álit Evrópuþingsins frá 15. febrúar 2007 (hefur ekki enn verið birt í Stjórnartíðindum ESB) og ákvörðun ráðsins frá 12. júní 2007.
Neðanmálsgrein: 3
(3)    Stjtíð. ESB C 104 E, 30.4.2004, bls. 714.
Neðanmálsgrein: 4
(4)    Stjtíð. EB L 184, 6.7.2001, bls. 1. Tilskipuninni var síðast breytt með tilskipun 2005/1/EB (Stjtíð. ESB L 79, 24.3.2005, bls. 9).
Neðanmálsgrein: 5
(5)    Stjtíð. ESB L 390, 31.12.2004, bls. 38.
Neðanmálsgrein: 6
(6)    Stjtíð. ESB C 321, 31.12.2003, bls. 1.
Neðanmálsgrein: 7
(7)    Stjtíð. EB L 375, 31.12.1985, bls. 3.
Neðanmálsgrein: 8
(8)    Stjtíð. ESB L 145, 30.4.2004, bls. 1.
Neðanmálsgrein: 9
(9)    Stjtíð. ESB L 142, 30.4.2004, bls. 12.