139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1071 — 190. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 41/2007, um landlækni, með síðari breytingum, og um brottfall laga nr. 18/2003, um Lýðheilsustöð, vegna nýrrar stofnunar, Landlæknis – lýðheilsu.
(Eftir 2. umr., 17. mars.)
I. KAFLI
Breyting á lögum nr. 41/2007, um landlækni, með síðari breytingum.
1. gr.
Markmið.
2. gr.
Landlæknir – lýðheilsa.
Landlæknir veitir stofnuninni forstöðu. Ráðherra skipar landlækni til fimm ára í senn að fengnu mati nefndar skv. 9. gr. laga um heilbrigðisþjónustu. Hann skal hafa sérfræðimenntun í læknisfræði, þekkingu á sviði lýðheilsu og víðtæka reynslu eða menntun á sviði stjórnunar.
Landlæknir ber ábyrgð á að stofnunin sem hann stýrir starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf. Landlæknir ræður starfsfólk stofnunarinnar.
3. gr.
a. Við bætist nýr töluliður, 1. tölul., sem orðast svo: Lýðheilsustarf: Felur í sér að viðhalda og bæta heilbrigði, líðan og aðstæður þjóðarinnar og þjóðfélagshópa með heilsueflingu, forvörnum og heilbrigðisþjónustu.
b. Í stað orðsins „landlæknis“ í 2. tölul. kemur: Landlæknis – lýðheilsu.
4. gr.
Meginhlutverk stofnunarinnar.
a. að veita ráðherra og öðrum stjórnvöldum, fagfólki og almenningi ráðgjöf og fræðslu um málefni á verksviði stofnunarinnar,
b. að annast forvarna- og heilsueflingarverkefni,
c. að efla lýðheilsustarf í samvinnu við aðra sem að þeim málum starfa og styðja við menntun á sviði lýðheilsu,
d. að vinna að gæðaþróun,
e. að hafa eftirlit með heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisstarfsmönnum,
f. að hafa eftirlit með lyfjaávísunum og fylgjast með og stuðla að skynsamlegri lyfjanotkun landsmanna,
g. að veita starfsleyfi til einstaklinga sem uppfylla skilyrði laga og reglugerða til notkunar starfsheita löggiltra heilbrigðisstétta,
h. að stuðla að því að menntun heilbrigðisstarfsmanna sé í samræmi við kröfur heilbrigðisþjónustunnar á hverjum tíma,
i. að sinna kvörtunum almennings vegna heilbrigðisþjónustu,
j. að bera ábyrgð á framkvæmd sóttvarna, sbr. sóttvarnalög,
k. að safna og vinna upplýsingar um heilsufar og heilbrigðisþjónustu,
l. að meta reglulega árangur af lýðheilsustarfi og bera hann saman við sett markmið,
m. að stuðla að rannsóknum á starfssviðum stofnunarinnar,
n. að sinna öðrum verkefnum sem stofnuninni er falið að sinna samkvæmt lögum, stjórnvaldsfyrirmælum eða ákvörðun ráðherra.
Ráðherra er heimilt að skilgreina verkefni stofnunarinnar nánar með reglugerð.
Landlækni – lýðheilsu er enn fremur heimilt að gera samninga við háskólastofnanir og aðrar stofnanir um samstarf á sviði rannsókna, kennslu og þjónustu er tengjast verksviði stofnunarinnar.
5. gr.
6. gr.
a. (4. gr. a.)
Fagráð.
Landlæknir setur reglur um skipan fagráða sem ráðherra staðfestir.
b. (4. gr. b.)
Lýðheilsusjóður.
Stjórn lýðheilsusjóðs ráðstafar fé úr sjóðnum í samræmi við ákvæði reglugerðar sem ráðherra setur skv. 4. mgr. Stjórn sjóðsins skipa sjö fulltrúar, fjórir tilnefndir af fagráðum, tveir fulltrúar Landlæknis – lýðheilsu og formaður sem skipaður er af ráðherra. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti.
Til lýðheilsusjóðs rennur hlutfall af innheimtu áfengisgjaldi í samræmi við ákvæði laga um gjald af áfengi og tóbaki, hlutfall af brúttósölu tóbaks í samræmi við ákvæði laga um tóbaksvarnir og framlag úr ríkissjóði samkvæmt ákvæðum fjárlaga hverju sinni.
Ráðherra skal með reglugerð mæla nánar fyrir um ráðstöfun fjár úr lýðheilsusjóði. Í reglugerð skulu sett ákveðin viðmið við úthlutun styrkja til mismunandi málaflokka, svo sem forvarna- og lýðheilsustarfs. Jafnframt skulu sett viðmið vegna ráðstöfunar fjármagns úr sjóðnum til verkefna og reksturs viðkomandi málaflokka innan stofnunarinnar.
7. gr.
a. Í stað orðsins „Landlæknir“ í 1. mgr. kemur: Landlæknir – lýðheilsa.
b. 2. mgr. orðast svo:
Stofnunin getur gefið út faglegar leiðbeiningar til heilbrigðisstarfsmanna, heilbrigðisstofnana og þeirra sem sinna lýðheilsustarfi, þar á meðal leiðbeiningar sem miða að nálgun og lausn vandamála í samræmi við bestu þekkingu á hverjum tíma. Leiðbeiningarnar skulu kynntar heilbrigðisstarfsmönnum og þeim sem sinna lýðheilsustarfi og vera aðgengilegar almenningi.
c. Í stað orðsins „Landlæknir“ í 3. mgr. kemur: Stofnunin.
8. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. laganna:a. Í stað orðsins „landlæknis“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: Landlæknis – lýðheilsu.
b. Í stað orðsins „landlæknis“ í 1. málsl. 2. mgr. og sama orðs hvarvetna í 2.–6. mgr. kemur, í viðeigandi beygingarmynd: stofnunin.
c. Í stað orðsins „hann“ í 3. málsl. 2. mgr. og 5. mgr. kemur: hún; og í stað orðsins „hans“ í 6. mgr. kemur: hennar.
9. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:a. Í stað orðsins „Landlæknir“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: Landlæknir – lýðheilsa.
b. Í stað orðsins „Landlæknir“ í 2. málsl. 1. mgr. og sama orðs hvarvetna í 1.–3. mgr. kemur, í viðeigandi beygingarmynd: stofnunin.
c. Í stað orðsins „hann“ í 2. málsl. 1. mgr. og 1. málsl. 2. mgr. kemur: hún.
10. gr.
a. Í stað orðsins „Landlæknir“ í 1. mgr. kemur: Landlæknir – lýðheilsa.
b. Í stað orðsins „Hann“ í 3. málsl. 1. mgr. kemur: Stofnunin.
c. Í stað orðsins „landlæknis“ í 4. málsl. 1. mgr. og sama orðs hvarvetna í 2., 3., 5., 6. og 7. mgr. kemur, í viðeigandi beygingarmynd: stofnunin.
d. Við 2. mgr. bætast tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:
9. Skrá um sykursýki.
10. Dánarmeinaskrá.
e. Við 2. mgr. bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Stofnuninni er heimilt að taka til varðveislu gagnasöfn um sjúkdóma sem stofnað var til fyrir setningu tölvulaga. Meðferð upplýsinga úr slíkum gagnasöfnum verði með heimild Persónuverndar og vísindasiðanefndar.
f. 4. mgr. orðast svo:
Stofnunin er ábyrgðaraðili þeirra skráa sem hún skipuleggur.
g. Í stað orðsins „honum“ í 1. málsl. 5. mgr. og 3. málsl. 6. mgr. kemur: henni; og í stað orðsins „hann“ í 1. og 3. málsl. 6. mgr. kemur: hún.
h. Í stað orðsins „embættisins“ í 2. málsl. 5. mgr. kemur: stofnunarinnar.
i. Í stað orðanna „sjúkratryggingastofnunin og Lýðheilsustöð“ í 4. málsl. 5. mgr. kemur: og sjúkratryggingastofnunin.
11. gr.
Í stað orðanna „landlækni“ og „landlæknis“ í 3. mgr. 9. gr. laganna kemur: Landlækni – lýðheilsu; og: stofnunarinnar.12. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. laganna:a. Í stað orðsins „landlækni“ í 1. mgr. kemur: Landlækni – lýðheilsu.
b. Í stað orðsins „Landlæknir“ í 1. málsl. 2. mgr. og sama orðs hvarvetna í 2.–6. mgr. kemur, í viðeigandi beygingarmynd: stofnunin.
c. Í stað orðsins „hann“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: hún.
13. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. laganna:a. Í stað orðsins „Landlæknir“ í 1. mgr. kemur: Landlæknir – lýðheilsa.
b. Í stað orðsins „landlæknis“ í 2. mgr. kemur: stofnunarinnar; og í stað orðsins „Landlæknir“ í 3. mgr. kemur: Stofnunin.
14. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. laganna:a. Í stað orðanna „Landlækni“ og „hans“ í 1. mgr. kemur: Landlækni – lýðheilsu; og: stofnunarinnar.
b. Í stað orðsins „landlæknis“ í 1. og 2. málsl. 2. mgr. og sama orðs hvarvetna í 4. mgr., 1., 4. og 5. málsl. 5. mgr. og 6. mgr. kemur, í viðeigandi beygingarmynd: stofnunin.
c. Í stað orðsins „hans“ í 2. málsl. 4. mgr. kemur: hennar.
d. Í stað orðanna „landlækni sjálfum“ í 2. málsl. 5. mgr. kemur: stofnuninni sjálfri.
e. Fyrirsögn greinarinnar verður: Kvörtun til Landlæknis – lýðheilsu.
15. gr.
16. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 13. gr. laganna:a. Í stað orðsins „Landlæknir“ í 1. mgr. kemur: Landlæknir – lýðheilsa.
b. Í stað orðsins „Landlæknir“ 1. málsl. 2. mgr. kemur: Stofnunin.
c. Í stað orðanna „telji hann“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: telji hún.
d. Í stað orðsins „landlækni“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: stofnuninni.
e. Fyrirsögn greinarinnar verður: Eftirlit Landlæknis – lýðheilsu með heilbrigðisstarfsmönnum.
17. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 14. gr. laganna:a. Í stað orðanna „landlæknir var“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: Landlæknir – lýðheilsa vör.
b. Í stað orðanna „skal hann“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: skal stofnunin.
c. Í stað orðsins „landlæknis“ í 2. málsl. 1. mgr. og 3. mgr. kemur: stofnunarinnar; og í stað orðsins „landlæknir“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: stofnunin.
18. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr. laganna:a. Í stað orðanna „landlæknis“ og „hann“ í 1. mgr. kemur: Landlæknis – lýðheilsu; og: stofnunin.
b. Í stað orðsins „Landlæknir“ í 2. mgr. og sama orðs hvarvetna í 3., 5. og 6. mgr. kemur, í viðeigandi beygingarmynd: stofnunin.
19. gr.
Í stað orðsins „landlæknis“ í 16. gr. laganna kemur: Landlæknis – lýðheilsu.20. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 17. gr. laganna:a. Í stað orðanna „Landlæknir getur“ í 1. málsl. kemur: Landlæknir – lýðheilsa getur.
b. Í stað orðsins „Landlæknir“ í 2. málsl. kemur: Stofnunin.
21. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 18. gr. laganna:a. Í stað orðsins „Landlæknir“ í 1. mgr. kemur: Landlæknir – lýðheilsa.
b. Í stað orðsins „Landlæknir“ í 1. málsl. 2. mgr. og sama orðs hvarvetna í 2. mgr. kemur, í viðeigandi beygingarmynd: stofnunin.
22. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 19. gr. laganna:a. Í stað orðsins „landlæknir“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: Landlæknir – lýðheilsa.
b. Í stað orðsins „landlæknis“ í 2. málsl. 1. mgr. og sama orðs hvarvetna í 3.–4. mgr. kemur, í viðeigandi beygingarmynd: stofnunin.
c. Í stað orðanna „getur hann“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: getur hún.
23. gr.
Í stað orðanna „Landlæknir getur“ í 20. gr. laganna kemur: Landlæknir – lýðheilsa getur.24. gr.
a. (I.)
Öll störf hjá landlæknisembættinu og Lýðheilsustöð eru lögð niður frá 1. maí 2011. Starfsmönnum landlæknisembættisins og Lýðheilsustöðvar skal boðið starf hjá hinni nýju stofnun frá og með sama tíma. Ákvæði 7. gr. laga nr. 70/1996 gilda ekki við ráðstöfun starfa samkvæmt þessu ákvæði.
Ráðherra er heimilt að flytja landlækni, sem skipaður er samkvæmt lögum um landlækni, í embætti forstöðumanns stofnunarinnar, skv. 36. gr. laga nr. 70/1996.
b. (II.)
Landlæknir – lýðheilsa tekur frá 1. maí 2011 annars vegar við eignum landlæknisembættisins og hins vegar við eignum Lýðheilsustöðvar sem og réttindum og skyldum þeirra að því er varðar framkvæmd þeirra laga sem falla undir málefnasvið þeirra á þeim tíma.
25. gr.
II. KAFLI
Brottfall laga nr. 18/2003, um Lýðheilsustöð.
26. gr.
III. KAFLI
Gildistaka.
27. gr.
Þegar lög þessi hafa öðlast gildi skal fella meginmál I. kafla þeirra inn í lög um landlækni, nr. 41 27. mars 2007, með síðari breytingum, og gefa þau út svo breytt með samfelldri greinatölu og kaflanúmerum.
IV. KAFLI
Breytingar á öðrum lögum.
28. gr.
Breyting á lögum nr. 96/1995, um gjald af áfengi og tóbaki, með síðari breytingum.
Af innheimtu áfengisgjaldi þeirra sem eru gjaldskyldir skv. 1. mgr. 2. gr. skal 1% renna í lýðheilsusjóð, sbr. lög um landlækni og lýðheilsu.
29. gr.
Breyting á lögum nr. 6/2002, um tóbaksvarnir, með síðari breytingum.
b. Í stað orðsins „tóbaksvarnanefnd“ í 1. mgr. 14. gr. laganna kemur: Landlækni – lýðheilsu.
c. 15. gr. laganna orðast svo:
A.m.k. 0,9% af brúttósölu tóbaks skal renna í lýðheilsusjóð, sbr. lög um landlækni og lýðheilsu.
30. gr.
Breyting á sóttvarnalögum, nr. 19/1997.
2. Í stað orðanna „Við embætti landlæknis“ í 2. mgr. 4. gr. laganna kemur: Hjá Landlækni – lýðheilsu.
3. Í stað orðanna „embætti landlæknis“ í 4. mgr. 6. gr. laganna kemur: Landlækni – lýðheilsu.
31. gr.
Breyting á lögum nr. 61/1998, um dánarvottorð, krufningar o.fl.
b. 5. og 6. mgr. 10. gr. laganna orðast svo:
Sýslumaður sendir dánarvottorð svo fljótt sem kostur er til Þjóðskrár Íslands. Jafnskjótt og andlát hefur verið skráð í þjóðskrá, ásamt nauðsynlegum upplýsingum, sendir Þjóðskrá Íslands dánarvottorðið til Landlæknis – lýðheilsu.
Hagstofa Íslands semur skýrslur um dánarorsakir og andvana fædd börn hér á landi. Landlæknir – lýðheilsa skal afhenda Hagstofunni þau gögn sem hún óskar eftir og nauðsynleg eru í þeim tilgangi.
c. 11. gr. laganna orðast svo:
Fæðist barn andvana skal ekki ritað dánarvottorð, en um það skal tilkynnt til Þjóðskrár Íslands og Landlæknis – lýðheilsu.
d. Í stað orðsins „landlæknis“ í 1. tölul. 2. mgr. 14. gr. laganna kemur: Landlæknis – lýðheilsu.
e. 4. tölul. 2. mgr. 14. gr. laganna orðast svo: Hvernig Þjóðskrá Íslands og Landlækni – lýðheilsu verði tilkynnt um andvana fædd börn.
32. gr.
Breyting á lögum nr. 16/2001, um lækningatæki.
b. Í stað orðsins „landlæknis“ í 1. mgr. 9. gr. og 12. gr. laganna og orðsins „hann“ í 1. mgr. 9. gr. kemur: Lyfjastofnunar, og: stofnunin.