Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 88. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1281 — 88. mál.
2. umræða.
1. 1. málsl. 1. mgr. 68. gr. orðist svo: Lög þessi öðlast þegar gildi.
2. Í stað dagsetningarinnar „1. júlí 2013“ í 2. málsl. 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða III komi: 31. desember 2013.
3. Við bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 68. gr. skulu heilbrigðisnefndir sinna eftirliti á árinu 2013 sem þær hafa þegar skipulagt eða fyrirhugað á árinu á grundvelli laga nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni, og upplýsa Umhverfisstofnun um niðurstöður eftirlitsins.
Lögð er til breyting á ákvæði til bráðabirgða III þannig að bráðabirgðavottun skv. 42. gr. frumvarpsins gildi eigi lengur en til 31. desember 2013. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að hún gildi til 1. júlí 2013 en bent hefur verið á að úr því sem komið er sé sá tími of naumur.
Einnig er gerð tillaga um nýtt ákvæði til bráðabirgða sem varðar eftirlit heilbrigðisnefnda á árinu. Heilbrigðisnefndir hafa gert eftirlits- og fjárhagsáætlanir í samræmi við gildandi löggjöf og mikilvægt er að tryggja það eftirlit sem ákveðið hefur verið.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1281 — 88. mál.
2. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til efnalaga.
Frá Ólafi Þór Gunnarssyni.
1. 1. málsl. 1. mgr. 68. gr. orðist svo: Lög þessi öðlast þegar gildi.
2. Í stað dagsetningarinnar „1. júlí 2013“ í 2. málsl. 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða III komi: 31. desember 2013.
3. Við bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 68. gr. skulu heilbrigðisnefndir sinna eftirliti á árinu 2013 sem þær hafa þegar skipulagt eða fyrirhugað á árinu á grundvelli laga nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni, og upplýsa Umhverfisstofnun um niðurstöður eftirlitsins.
Greinargerð.