Þingskjal 246 — 198. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 61/2006, um lax- og silungsveiði, með síðari breytingum (ábyrgð félagsmanna í veiðifélögum).
(Lagt fyrir Alþingi á 143. löggjafarþingi 2013–2014.)
1. gr.
2. gr.
3. gr.
a. Í stað tilvísunarinnar „1.–4. mgr.“ í 1. málsl. 5. mgr. kemur: 1.–3. mgr.
b. 2. málsl. 5. mgr. fellur brott.
4. gr.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Veiðifélög eru sjálfstæðir lögaðilar samkvæmt gildandi lögum og stjórnvaldsreglum um það efni, m.a. lögum nr. 61/2006, um lax- og silungsveiði. Ljóst er að starfsemi veiðifélaga eða tilteknir þættir í starfsemi þeirra geta verið fjárhagslegs eðlis en það hefur þá þýðingu m.a. að veiðifélög geta átt eignir og stofnað til fjárhagslegra skuldbindinga.
Veiðifélög bera ábyrgð á skuldbindingum sem stofnað er til vegna starfsemi þeirra með eignum sínum, m.a. þeim eignum sem þinglýstar eru á nafn veiðifélags. Ákvæði í gildandi lögum eru ekki skýr um hvort eða hvaða ábyrgð einstakir félagsmenn geta borið á skuldbindingum sem stofnað er til vegna starfsemi veiðifélaga. Unnin hefur verið álitsgerð Lagastofnunar Háskóla Íslands um eðli, réttarstöðu og heimildir veiðifélaga fyrir Landssamband veiðifélaga, en álitsgerðin var unnin af Stefáni Má Stefánssyni, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, og Eyvindi G. Gunnarssyni, dósent við lagadeild Háskóla Íslands. Þar koma fram þau sjónarmið að félagsmenn kunni að bera fulla, ótakmarkaða og solidariska ábyrgð á fjárskuldbindingum veiðifélags samkvæmt lögum nr. 61/2006, um lax- og silungsveiði. Það þýðir að óbreyttri löggjöf að einstakir félagsmenn eða allir kunni að verða krafðir um greiðslu geti veiðifélag ekki staðið við fjárskuldbindingar sínar. Í ljósi skylduaðildar að veiðifélögum er talið nauðsynlegt að kveða skýrt á um þessi efni í lögunum en sem dæmi má nefna að ótækt er að félagsmaður í veiðifélagi beri persónulega fjárhagslega ábyrgð á framkvæmd sem samþykkt er á fundi í veiðifélagi gegn mótatkvæði hans. Með frumvarpinu eru tekin af öll tvímæli um að félagsmenn í veiðifélagi bera ekki persónulega ábyrgð á fjárskuldbindingum veiðifélagsins. Samkvæmt því verður ekki hægt að ganga að öðrum eignum félagsmanns til greiðslu á fjárskuldbindingum veiðifélags en eignarhlut hans í skráðum eignum veiðifélags.
Til viðbótar við framangreint eru með frumvarpinu lagðar til nokkrar minni háttar breytingar á lögum nr. 61/2006, um lax- og silungsveiði, sem talið var rétt að gera með sama frumvarpi. Eru þær eftirfarandi:
1. Lagt er til að breytt verði ákvæðum um tímamörk reglna sem veiðifélög eða veiðiréttarhafar, þar sem ekki starfa veiðifélög, setja um stangveiði á veiðisvæði sínu. Samkvæmt gildandi lögum skulu slíkar reglur gilda í átta ár.
2. Lagt er til að ákvæði 1. málsl. 5. mgr. 41. gr. laganna verði breytt og að felldur verði brott 2. málsl. 5. mgr. 41. gr. laganna þar sem það ákvæði er ekki í samræmi við meginefni laganna um gildistöku arðskrár sem unnin er af matsnefnd.
Við gerð frumvarpsins var haft samráð við Landssamband veiðifélaga. Verði frumvarpið að lögum mun það fyrst og fremst hafa áhrif á veiðifélög og félagsmenn í veiðifélögum.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Um 2. gr.
Um 3. gr.
Um 4. gr.
Fjármála- og efnahagsráðuneyti,
skrifstofa opinberra fjármála:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 61/2006, um lax- og silungsveiði, með síðari breytingum (ábyrgð félagsmanna í veiðifélögum).
Verði frumvarpið óbreytt að lögum verður ekki séð að það muni hafa í för með sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð.