Ferill 223. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 252 — 223. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um beinagrind steypireyðar.
Frá Kristjáni L. Möller.
1. Hvers vegna hefur beinagrind steypireyðar sem ráðuneytið hefur umsjón með ekki verið komið fyrir á Hvalasafninu á Húsavík?
2. Hver eru áform ráðherra um staðsetningu beinagrindarinnar?