Ferill 46. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 46 — 46. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis- og auðlindaráðherra um uppbyggingu á Kirkjubæjarklaustri.
Frá Steingrími J. Sigfússyni.
1. Hvenær er þess að vænta að hafist verði handa um uppbyggingu gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Kirkjubæjarklaustri?
2. Hefur ráðherra eða ríkisstjórn mótað sér stefnu um þátttöku ríkisins í uppbyggingu þekkingarseturs á Kirkjubæjarklaustri, sbr. fyrri áform um að ríki, sveitarfélag, ferðaþjónustu- og menningaraðilar og opinberar stofnanir sameinuðust um slíkt verkefni?