Ferill 49. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 49 — 49. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um virðisaukaskatt af útleigu rafmagnsbíla.
Frá Össuri Skarphéðinssyni.
Hver er afstaða ráðherra til þess að ýtt verði undir orkuskipti í samgöngum með því að fella niður virðisaukaskatt af útleigu rafmagnsbíla gegn umsömdu leigugjaldi í tiltekinn lágmarksleigutíma (eignaleiga) með svipuðum hætti og heimilt er samkvæmt ákvæði til bráðabirgða XXIV í lögum um virðisaukaskatt?