Ferill 158. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 552 — 158. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald,
nr. 85/2007 (hæfi dyravarða).
(Eftir 2. umræðu, 18. nóvember.)
1. gr.
2. málsl. 1. mgr. 6. gr. laganna orðast svo: Nánar skal kveða á um hæfi og þjálfun dyravarða í reglugerð og er heimilt að kveða þar á um að dyraverðir skuli hafa náð 20 ára aldri, að þeir hafi ekki gerst sekir um ofbeldis- eða fíkniefnabrot á síðastliðnum fimm árum og að dyraverðir skuli sækja sérstök námskeið þar sem farið er yfir atriði sem á reynir við dyravörslu, svo sem ákvæði áfengislaga, hjálp í viðlögum, viðbrögð við óspektum og hvernig þekkja megi merki um neyslu og sölu ólöglegra vímuefna.
2. gr.