Ferill 450. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 685 — 450. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um eftirlit með starfsháttum lögreglu.
Frá Helga Hrafni Gunnarssyni.
1. Hvenær er að vænta niðurstöðu starfshóps sem taka átti til skoðunar hvernig komið yrði á virkara eftirliti með starfsháttum lögreglu?
2. Er ráðgert að um innra eftirlit verði að ræða eða er stefnt að því að eftirlitið verði alfarið sjálfstætt og óháð löggæsluyfirvöldum?