Ferill 214. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 734 — 214. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um framhaldsskóla,
nr. 92/2008 (rafræn námsgögn o.fl.).
(Eftir 2. umræðu, 12. desember.)
1. gr.
2. mgr. 11. gr. laganna orðast svo:
Ákvæði þessarar greinar taka einnig til skólameistara, annarra faglegra stjórnenda og náms- og starfsráðgjafa.
2. gr.
3. gr.
a. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Ráðherra gefur út reglugerð um starfstíma framhaldsskóla.
b. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Námseiningar og starfstími.
4. gr.
a. Í stað orðanna „og efnisgjalds“ í 1. málsl. 1. mgr. og sömu orða í 2. mgr. kemur: efnisgjalds og gjalds fyrir rafrænt námsefni.
b. Við 1. mgr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Heimilt er í tilraunaskyni með sérstöku leyfi ráðherra að innheimta gjald fyrir rafrænt námsefni sem framhaldsskólar ákveða og er veigamikill hluti af námsefni í námsáfanga á skráðri námsbraut viðkomandi nemenda eða í áfanga sem þeir hafa ákveðið að stunda sem valgrein.
5. gr.
6. gr.