Ferill 567. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 982 — 567. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis- og auðlindaráðherra um norrænt merki
fyrir sjálfbæra ferðamannastaði.
Frá Róbert Marshall.
1. Hafa íslensk stjórnvöld tekið afstöðu til tilmæla Norðurlandaráðs nr. 25/2014, um þróun norræns merkis fyrir sjálfbæra ferðamannastaði?
2. Hafa íslensk stjórnvöld beitt sér fyrir því að norræna ráðherranefndin fari að tilmælunum?