Ferill 843. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1579 — 843. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, með síðari breytingum (viðmiðunardagur umsóknar um kosningarrétt o.fl.).
Frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.
1. gr.
2. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. og 3. mgr. 27. gr. skal umsókn um kosningarrétt skv. b-lið 2. mgr. 1. gr. sem berst Þjóðskrá Íslands í síðasta lagi 29. september 2016 gilda frá dagsetningu bréfs hennar um að umsækjandi skuli tekinn á kjörskrá. Að öðru leyti fer um kosningarréttinn skv. 2. gr. laganna.
Fullnægjandi umsókn um að verða tekinn á kjörskrá sem berst Þjóðskrá Íslands eftir 29. september 2016 gildir frá 1. desember 2016.
Umsókn um að verða tekinn á kjörskrá sem barst Þjóðskrá Íslands eftir 1. desember 2015 og var fullnægjandi skal nú gilda frá gildistöku þessa ákvæðis. Að öðru leyti fer um kosningarréttinn skv. 2. gr. laganna. Þjóðskrá Íslands tilkynnir umsækjanda þessa breytingu og hlutaðeigandi sveitarstjórn.
3. gr.
4. gr.
Greinargerð.
Töluverð reynsla er komin á framkvæmdina samkvæmt ákvæðinu og hefur gefist vel að miða við 1. desember ár hvert. Hagræði er í því fyrir íslenska ríkisborgara sem hafa lengi verið búsettir erlendis að miða gildistíma umsóknar um kosningarrétt við tiltekna dagsetningu, sem þeir þekkja frá fyrri tíð, í stað þess að hafa hana breytilega frá einum tíma til annars. Viðkomandi á þá auðveldara með að muna hvenær hann þarf að sækja um aftur til að vera áfram á kjörskrá. Þetta leiðir hins vegar til þess að bregðast þarf sérstaklega við, ef þurfa þykir, þegar boðað er til kosninga á miðju reglulegu kjörtímabili.
Samkvæmt nýju ákvæði til bráðabirgða verður leyst úr vandasamri stöðu íslenskra ríkisborgara sem búsettir hafa verið erlendis lengur en átta ár og sækjast nú eftir að komast á kjörskrá. Samkvæmt almennu ákvæði í 2. gr. og 3. mgr. 27. gr. laga um kosningar til Alþingis hefðu þeir ekki öðlast kosningarrétt fyrr en frá 1. desember 2016. Með frumvarpinu er komið til móts við hagsmuni tveggja hópa: Annars vegar þeirra sem búsettir eru erlendis og hafa sent fullnægjandi umsókn eftir 1. desember 2015 og hafa nú fengið bréf Þjóðskrár Íslands um að þeir eigi kosningarrétt frá 1. desember 2016. Þeir fá nú kosningarrétt frá gildistöku þessa ákvæðis og geta því kosið við þær alþingiskosningar sem fyrirhugaðar eru í haust. Hins vegar tekur frumvarpið á hagsmunum þeirra íslensku ríkisborgara sem búsettir hafa verið lengur en átta ár erlendis en hafa ekki enn sent Þjóðskrá umsókn um að verða teknir á kjörskrá. Nú munu þeir eiga þess kost að senda inn fullnægjandi umsóknir og öðlast kosningarrétt í tæka tíð. Þjóðskrá Íslands mun tilkynna hlutaðeigandi umsækjendum um þessar breytingar og kosningarrétt þeirra, sem og hlutaðeigandi sveitarstjórnum.
Rétt þykir að taka fram að kosningarrétturinn, sem menn geta öðlast samkvæmt umsókn ef frumvarp þetta verður samþykkt, gildir til 1. desember 2016 og síðan áfram í fjögur ár skv. 2. gr. kosningalaga. Þetta þýðir að kjósandi heldur kosningarrétti sínum til 1. desember 2020. Til þess að vera áfram á kjörskrá eftir það verður kjósandi að sækja aftur um til Þjóðskrár Íslands eftir 1. desember 2019, sbr. 1. mgr. 2. gr. kosningalaga.
Frumvarp sama efnis var samþykkt fyrir Alþingiskosningar 25. apríl 2009 og var umsóknardagur um kosningarrétt miðaður við 25. mars sama ár eða 30 daga frest.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Um 2. gr.
Íslenskir ríkisborgarar sem búsettir eru erlendis og höfðu þegar sent fullnægjandi umsókn um kosningarrétt, sem átti að gilda frá 1. desember 2016, öðlast á sama hátt kosningarrétt fyrir þær alþingiskosningar sem fyrirhugaðar eru í haust. Að öðru leyti fer um kosningarréttinn skv. 2. gr. kosningalaga. Þjóðskrá Íslands tilkynnir umsækjendum þessa breytingu og hlutaðeigandi sveitarstjórnum.
Um 3. gr.
Um 4. gr.