Ferill 278. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 307 — 278. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um greiningu og meðferð barna með ADHD.
Frá Páli Val Björnssyni.
1. Hvaða áform hefur ráðherra um að bæta aðgengi barna að greiningu á taugaþroskaröskuninni ADHD, þ.e. athyglisbresti og ofvirkni?
2. Hyggst ráðherra bæta aðgengi að meðferð fyrir börn sem hafa verið greind með ADHD?