Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 590 — 1. mál.
2. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2016.
Frá meiri hluta fjárlaganefndar (VigH, GÞÞ, ÁsmD, HarB, PJP, ValG).
1. Við 6. gr. Nýr liður:
2.15 Að selja húsnæði Þjóðskjalasafns Íslands við Laugaveg 162 í Reykjavík og kaupa eða leigja annað hentugra húsnæði.
2.16 Að selja Tollhúsið við Tryggvagötu 19 í Reykjavík og kaupa eða leigja hentugra húsnæði fyrir starfsemi ríkisins sem nú er í húsinu.
2. Við 6. gr. Nýir liðir:
4.17 Að heimila Jarðasjóði að selja jarðir sem ekki eru nýttar til ábúðar í því skyni að koma þeim í ábúð eða nýta þær á annan hátt.
4.18 Að ganga til samninga við sveitarfélagið Skagafjörð um sölu á Málmey.
3. Við 6. gr. Nýir liðir:
3.11 Að selja eignarhlut ríkisins í Brautarholti 6, Reykjavík.
3.12 Að selja Ísafjarðarbæ hluta af eignarhluta ríkisins í stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði.
3.13 Að selja eignarhlut ríkisins í Höfðastíg 17, Bolungarvík.
3.14 Að selja eignarhlut ríkisins í Miðtúni 10, Seyðisfirði.
3.15 Að selja eignarhlut ríkisins í Miðási 1, Egilsstöðum.
4. Við 6. gr. Nýir liðir:
6.21 Að kaupa íbúðarhúsið Brekkugerði í Gunnarsholti fyrir starfsemi Landgræðslu ríkisins.
6.22 Að kaupa eða leigja húsnæði fyrir Fiskistofu á Akureyri.
6.23 Að leigja út húsnæði ríkisins á Hvanneyri sem Landbúnaðarháskóli Íslands nýtir ekki.
6.24 Að kaupa eða leigja hentugt húsnæði fyrir verknámsdeild Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.
6.25 Að kaupa eða leigja hentugt húsnæði fyrir sjúkrabíla Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi.
5. Við 6. gr. Nýir liðir:
7.10 Að ganga til samninga við fyrrum gefendur lóðar og fasteigna Krýsuvíkurkirkju og vinafélags Krýsuvíkurkirkju um ráðstöfun lands og fasteigna endurbyggðrar kirkju.
7.11 Að greiða kostnað vegna nauðsynlegra breytinga á húsnæði þegar stofnanir á vegum ríkisins eru í hagræðingarskyni færðar milli fasteigna í eigu ríkisins og/eða fasteigna sem ríkið hefur tekið á langtímaleigu.
7.12 Að færa eignarhluti í fjármálafyrirtækjum, sem afhentir kunna að verða sem hluti af stöðugleikaframlagi, til Bankasýslu ríkisins á grundvelli laga um Bankasýslu ríkisins.