Ferill 13. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 21 — 13. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um málefni fatlaðs fólks og lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum (framlenging samninga um notendastýrða persónulega aðstoð og skipun þingmannanefndar).
Frá efnahags- og viðskiptanefnd.
I. KAFLI
Breyting á lögum um málefni fatlaðs fólks, nr. 59/1992, með síðari breytingum.
1. gr.
II. KAFLI
Breyting á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, nr. 46/1980, með síðari breytingum.
2. gr.
Ákvæði þetta gildir til ársloka 2017 eða þar til lög verða sett um notendastýrða persónulega aðstoð.
3. gr.
Greinargerð.
Ljóst er að ekki næst að klára verkefnið fyrir lok árs 2016 og telur nefndin því nauðsynlegt að leggja fram frumvarp þetta til að veita heimild til að framlengja samninga sem gerðir hafa verið á grundvelli framangreinds bráðabirgðaákvæðis út árið 2017. Þá er nauðsynlegt að framlengja ákvæði 2. mgr. bráðabirgðaákvæðis 9 í lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, nr. 46/1980, með síðari breytingum, sem kom inn með lögum nr. 80/2015, út árið 2017 eða þar til lög um notendastýrða persónulega aðstoð taka gildi.