Ferill 183. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 254  —  183. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um jafnt búsetuform barna sem búa á tveimur heimilum.

Frá Elsu Láru Arnardóttur.


     1.      Er unnið að lagabreytingum á grunni skýrslu innanríkisráðherra um jafnt búsetuform barna sem búa á tveimur heimilum sem lögð var fram á Alþingi í september 2015 (168. mál á 145. löggjafarþingi)?
     2.      Ef svo er, hvenær verða frumvörp um málið lögð fram? Ef ekki, hvenær ætlar ráðherra að hefja þá vinnu?