Ferill 2. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 40 — 2. mál.
2. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2017.
Frá Smára McCarthy.
1. Á eftir 2. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða LVII í lögunum:
a. Í stað orðanna „árinu 2016“ kemur: árunum 2016 og 2017.
b. Í stað orðanna „árinu 2017“ kemur: árunum 2017 og 2018.
c. Í stað orðanna „ársins 2016“ kemur: áranna 2016 og 2017.
2. Á eftir 7. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
Við 1. mgr. 43. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Endurgreiðslan skal þó ekki vera umfram 7% af sölufjárhæð.
3. Í stað „2017“ í b-lið 8. gr. komi: 2020.
4. Á eftir 9. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
Á eftir orðinu „2016“ í ákvæði til bráðabirgða IV í lögunum kemur: og 2017.
5. Efnismálsgrein 28. gr. orðist svo:
Þrátt fyrir ákvæði laganna skal skuldbinding ríkisins skv. 60. gr. á árinu 2017 samkvæmt sérstöku samkomulagi íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar vera 1.559,3 millj. kr. Framlag til Kristnisjóðs skal vera 71,4 millj. kr. á árinu 2017.
6. Í stað „968 kr.“ í 30. gr. komi: 1.100 kr.
7. 3. efnismgr. 61. gr. orðist svo:
Ákvæði a- og b-liðar 2., 3., 9., b-liðar 10., 11., 12., 21., s-liðar 22., 23., 26., 27., 31., 32., 44., 61. og 63. gr. öðlast þegar gildi.