Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 52 — 1. mál.
2. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2017.
Frá 1. minni hluta fjárlaganefndar (HarB, GÞÞ, SilG, UBK).
2.18 Að selja húsnæði Þjóðskjalasafns Íslands við Laugaveg 162 í Reykjavík og kaupa eða leigja annað hentugra húsnæði.
2.19 Að selja Tollhúsið við Tryggvagötu 19 í Reykjavík og kaupa eða leigja hentugra húsnæði fyrir starfsemi ríkisins sem nú er í húsinu.
2. Við 5. gr. Nýr liður:
3.15 Að selja eignarhlut ríkisins í Miðási 1, Egilsstöðum.
3.16 Að selja eignarhlut ríkisins í Laugavegi 116 og 118, Reykjavík.
3. Við 5. gr. Nýr liður:
4.21 Að ganga til samninga við sveitarfélagið Skagafjörð um sölu á Málmey.
4. Við 5. gr. Nýr liður:
6.24 Að kaupa jörðina Fell í Suðursveit.
6.25 Að ganga til samninga við Seltjarnarnesbæ um kaup ríkisins á Safnatröð 5, Seltjarnarnesi.
6.26 Að ganga til samninga um kaup ríkisins á „Villa Nova“, Aðalgötu 23, Sauðárkróki.